Umbuna nemendum sem koma ekki á bíl Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 18. september 2014 09:00 Andri Sigurðsson, formaður Stúdentafélags HR, hefur hjólað í skólann síðustu daga til að taka þátt í samgönguvikunni. vísir/Ernir „
Undanfarna morgna höfum við verið með fólk við strætóskýlið, hjóla- og bílastæðin til að fylgjast með samgöngum nemenda,“ segir Andri Sigurðsson, formaður Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík. Þessa vikuna tekur HR þátt í Evrópskri samgönguviku og er markmiðið að draga úr notkun nemenda á einkabílnum og auðvelda samgöngur í og úr skólanum. Allir sem koma í skólann þessa vikuna á hjóli, gangandi, í strætó eða margir saman í bíl fá happdrættismiða. Síðan er daglega dreginn út veglegur vinningur í hádeginu. „Þeir sem koma tveir saman í bíl fá ekki happdrættismiða en þeir fá að leggja í bílastæði nálægt skólanum. Þeir sem eru einir í bíl fá bílastæðin sem eru lengst í burtu,“ segir Andri og bætir við að strax sjáist árangur af átakinu. „Það eru fleiri í strætó og fleiri hjól eru á stöndunum fyrir utan skólann.“ Andri vonast til að átakið verði til þess að það dragi úr notkun einkabíla í kringum skólann enda skapist oft umferðaröngþveiti á morgnana og klukkan fjögur þegar skóla lýkur. „Það er oft stífla héðan frá skólanum og út á Bústaðaveg. Svo erum við að þrýsta á borgina að fá í gagnið skutlu sem gæti farið á milli BSÍ og skólans og þannig auðvelda umferð hingað að skólanum,“ segir Andri og bendir á að strætósamgöngur í skólann séu ekki nægilega góðar. „Hingað gengur aðeins ein strætóleið og það á hálftímafresti. Þar að auki passar hún illa við tímatöflur annarra leiða þannig að farþegar þurfa yfirleitt að bíða í að minnsta kosti korter ef þeir þurfa að skipta um vagn. Það er kannski ekki nógu góð hvatning til að fólk taki vagninn.“ Yfirskrift Evrópsku samgönguvikunnar þetta árið er Okkar götur, okkar val og er til þess fallin að hvetja til umhugsunar um hvernig borg við viljum búa í. Litið er á átakið í HR sem gott tækifæri fyrir nemendur að hugsa hvernig þeir vilji að svæðið þróist eftir því sem skólinn stækkar og nemendum fjölgar. „Nemendur geta líka látið að sér kveða í samfélagslegri ábyrgð með því að taka þátt. Önnur markmið með átakinu eru að sporna við slæmri þróun í loftlagsmálum, svo að ekki sé minnst á jákvæð áhrif á heilsufar og sparnað.“
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira