Kennari fær 200 þúsund krónur vegna eineltis skólastjóra Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. september 2014 17:48 Grunnskóli Grindavíkur
Hæstiréttur dæmdi Grindavíkurbæ í dag til að greiða kennara í Grunnskóla Grindavíkur 200 þúsund krónur í miskabætur vegna eineltis af hálfu skólastjóra. Kennarinn kvartaði yfir eineltinu í október árið 2011 og voru þrír sálfræðingar fengnir til að meta hvort skólastjórinn hefði lagt kennarann í einelti. Þeir sögðu svo vera en bættu við að eineltismálið væri þó hluti af stærra vandamáli sem hefði ríkt á vinnustaðnum sem hélst í hendur við hagræðingaraðgerðir í rekstri bæjarins. Þó svo að kennarinn væri í stöðu þolanda þá væri ýmislegt í framkomu hans talið aðfinnsluvert í málinu. Viðurkenndi kennarinn að hafa svarað fyrir sig og ekkert verið að liggja á skoðunum sínum um að hann teldi ráðstafanir skólastjóra ómálefnalegar. Hafi framkoma hans stangast á við lög þar sem hann gætti ekki kurteisi og lipurðar gagnvart samstarfsfólki, heldur ól, samkvæmt því sem fram kom í dómnum, á flokkadráttum sem risið höfðu. Af þessum sökum varð kennarinn að bera ábyrgð á helmingi miska síns. Kennarinn höfðaði mál til að krefjast bóta og var Grindavíkurbæ gert að greiða kennaranum 400.000 í Héraðsdómi Reykjaness. Bærinn áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar sem lækkaði miskabæturnar í 200.000 krónur. Dóminn má lesa hér.
Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira