Braut gegn tólf ára stúlku sem lá við hlið dótturinnar 14. maí 2014 17:51 vísir/getty
Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi í gær rúmlega fertugan karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tólf ára stúlku. Þar af eru tólf mánuðir skilorðsbundnir en brotin framdi maðurinn árið 2012. Þá var manninum gert að greiða stúlkunni 600 þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn, sem fæddur er árið 1972, var dæmdur fyrir að hafa brotið gegn stúlkunni í tvígang. Í niðurstöðu dómsins segir að maðurinn hafi í fyrra skiptið farið með hendur um fótleggi og í kringum klof stúlkunnar utan klæða og reynt að káfa á henni innan nærbuxna. Í seinna skiptið hafi hann farið með hendur undir sæng hjá stúlkunni þar sem hún lá og káfað á brjóstum hennar og rassi utan klæða, fært fótleggi hennar í sundur, káfað á kynfærum hennar innan klæða og sett fingur inn í leggöng hennar. Ákærði neitaði sök og krafðist sýknu af öllum kröfum ákæruvalds en til vara að yrði hann dæmdur til refsingar yrði refsingin að öllu leyti skilorðsbundin.Brotavilji einbeittur Í niðurstöðu dómsins segir að maðurinn hafi misnotað gróflega trúnaðartraust foreldra stúlkunnar sem höfðu tekið hann og fjölskyldu hans inn á heimili sitt þegar maðurinn og fjölskylda hans þurfti á þeirri aðstoð að halda. Þá hafi maðurinn brotið gegn barni sem tengdist honum fjölskylduböndum. Hann hafi brugðist því trausti sem stúlkan hafði borið til hans vitandi að brotið gæti haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir hana. Þá telur dómurinn að brotavilji ákærða hafi verið einbeittur en hann braut gegn stúlkunni þrátt fyrir að tíu ára gömul dóttir hans væri við hlið stúlkunnar og að þáverandi sambýliskona hans og fjölskylda stúlkunnar væru öll í húsinu þegar brotin voru framin. Þá segir í niðurstöðum dómsins að meðferð málsins hefi dregist mjög hjá lögreglu og ákæruvaldi en meira en tvö ár eru síðan málið var kært til lögreglu. Litið var til þess við ákvörðun refsingar og einnig þess að ákærði hefur ekki áður sætt refsingu.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira