Gáfu heyrnarskertri stúlku tvo gítara í jólagjöf Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. desember 2014 20:01 Þær Rós og Victoría voru á flakki á Þorláksmessu og komu við í Tónastöðinni til að skoða gítara. Vísir/Rós Sveinbjörnsdóttir „
Það er ekki hægt að gefa stærri jólagjöf en þetta. Þetta hefur hún þráð lengi,“ segir Rós Sveinbjörnsdóttir, amma Victoríu Lindar sem fékk tvo gítara að gjöf frá Tónastöðinni nú um jólin, í samtali við Vísi. Victoría er heyrnaskert en mikil dans- og söngvastelpa, að sögn ömmu hennar. Þær Rós og Victoría voru á flakki á Þorláksmessu og komu við í Tónastöðinni til að skoða gítara. Þar spjallaði Victoría við afgreiðslumann sem lánaði henni gítar sem hún byrjaði strax að slá á. „Verðið var allt of hátt en hann sagðist vita af einum gítar á lagernum,“ skrifar Rós á Facebook, en frásögnin hefur vakið mikla athygli. Afgreiðslumaðurinn bað þær um að koma við í búðinni seinna svo þær gætu skoðað ódýrari gítarinn. Síðar um daginn var hringt úr búðinni og þeim sagt að gítarinn væri kominn í leitirnar. Þær brunuðu þá af stað aftur í Tónastöðina. „Þegar þangað var komið var henni réttur litill gítar sem smellpassaði við hana, hún byrjaði að slá á hann i búðinni augun ljómuðu og hún sagði, amma þessi passar við mig,“ skrifar hún. „Þá segja drengirnir að hún mætti eiga hann og komu með annan stærri og færðu henni til að nota þegar hún stækkaði,“ skrifar hún og bætir við: „Hjartað i ömmunni stækkaði um 5 númer og stór kökkur myndaðist i hálsinum.“ Rós segir að Victoría hafi miss heyrnina upp úr fimm ára aldri en hún er 12 ára í dag. Hún er búin að fara í kuðungaaðgerð og er að fá heyrnina aftur á öðru eyranu. Heyrnaskerðingin hefur þó ekki komið í veg fyrir tónlistaráhugann. „Hún er mikil dans- og söngvastelpa,“ segir amma hennar. Gítararnir hafa fært Victoríu mikla gleði um jólin. „Hún situr hérna og slær og slær,“ segir Rós. „Þeim fannst bara svo yndislegt að heyrnaskert barn langaði i gítar, fallegri jólagjöf er varla hægt að gefa, þessir drengir eiga allir mínar bestu þakkir,“ skrifaði hún á Facebook.
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira