Fuglalíf við landið gjörbreytist á áratug Jón Sigurður Einarsson skrifar 9. júlí 2014 07:00 Það er víðast liðin tíð að menn kvarti yfir fjölda máva hér við land en það hefðu þótt ótrúleg tíðindi ekki alls fyrir löngu. Fréttablaðið/Pjetur
Gríðarlegar breytingar hafa átt sér stað í stofnum sjófugla á einum áratug hér við land. Fræðimenn sem Fréttablaðið talaði við segja að stofnhrun hafi sligað sumar af þeim fuglategundum sem jafnvel voru taldar helst til stofnstórar ekki alls fyrir löngu. Ástæðurnar geta verið af ýmsum toga en þó ber fræðimönnum saman um að hrun sílastofnsins árið 2005 sé mikill áhrifavaldur í þessari þróun. Arnþór Garðarsson, fuglafræðingur og fyrrverandi prófessor við Háskóla Íslands, segir það afar súrt í broti að Hafrannsóknastofnun hafi hætt rannsóknum sínum á sílum. „Það er stundum eins og menn haldi að gögnin komi fljótandi til þeirra en því miður þarf að rannsaka hluti til þess að afla þeirra,“ segir hann. Ólafur S. Ástþórsson, sitjandi forstjóri Hafró, segir það vissulega rétt að í ár hafi stofnunin ekki bolmagn til að leggja í rannsóknarleiðangur til að rannsaka síli eins og gert hefur verið undanfarin ár. „Við höfum þurft að draga saman og þetta er eitt af því sem við sáum okkur ekki fært að sinna, því miður,“ segir hann. Rita, langvía og stuttnefja eiga orðið erfitt uppdráttar hér við land eftir magra tíð en einnig svartbakur, hvítmávur og sílamávur sem fyrir um áratug þóttu víða heldur margir og fyrirferðarmiklir. Ævar Petersen fuglafræðingur hefur í mörg ár talið fjölda ritu, sérstaklega á Breiðafirði, og hvítmávs á landinu öllu. Benda þær tölur til þess að hvítmávur sé að hverfa og ritu hefur fækkað sífellt í árafjöld á Breiðafirðinum. Ekki eru gögnin hans Arnþórs meira upplífgandi því þau bera það með sér að svartfugl eigi í verulegum vandræðum og hefur fækkað um helming á tuttugu árum. Eins og gefur að skilja hefur sílamávi fækkað verulega og má tala um stofnhrun hjá honum. Það eru þó ekki einungis sjófuglar sem berjast í bökkum því snjótittlingur, sem var einn útbreiddasti fugl landsins, er orðinn frekar fátíður jafnvel á stöðum sem áður voru hans mikilvægustu varpstöðvar. Ekki er þó allt hábölvað því þessarar þróunar hefur lítt orðið vart á Norðausturlandi. Þar virðist vera vin í þessari eyðimörk sem við flestum sjófuglum blasir. Þar að auki virðast breyttar aðstæður vera súlu og dílaskarfi í hag en þeim fjölgar og þrífast fuglarnir vel.
Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira