Nefbrotinn eftir líkamsárás: „Þetta er alveg hrikalegt" Kjartan Atli Kjartansson skrifar 18. ágúst 2014 14:41 Ívar leitar vitna að árásinni. Mynd/Úr einkasafni „
Ég er nefbrotinn eftir þetta, enda var ég skallaður og kýldur í andlitið af miklu afli,“ segir Ívar Máni Garðarsson um árás sem hann varð fyrir aðfaranótt sunnudags. Ívar leitar vitna að árásinni, sem átti sér stað fyrir utan skemmtistaðinn 800 Bar á Selfossi. „Ég sat í grárri Benz-bifreið, fyrir utan staðinn. Þá kemur að mér maður sem ég kannast við,“ útskýrir Ívar og bætir því við að hann þekki manninn, en vill ekki nafngreina hann. Ívar heldur áfram: „Hann bað mig um að færa mig. Ég sat inni í bíl og hann vildi setjast þar en ekki að ég væri þar einnig. Ég sagðist ekki ætla að færa mig og þá byrjaði hann að hóta mér barsmíðum, sem mér fannst nú heldur langt gengið. Ég sagði honum að ef hann myndi ráðast á mig myndi ég bara hringja í lögregluna og kæra hann. Þá tók hann sig til og skallaði mig í framan. Ég nefbrotnaði við það. Síðan kemur hann almennilega inn í bílinn, tekur mig hálstaki og kýlir mig fast í andlitið. Ég hálf vankaðist við höggin og var í svaka „sjokki“ eftir að hann hafði nánast kæft mig.“Skyrta Ívars var blóðug eftir árásina.Mynd/Úr einkasafniVinir Ívars ruku til og náðu í dyraverði staðarins og lögregluna. Árásarmaðurinn fór af vettvangi en Ívar sat eftir brotið nef og laskaður á andliti. „Þetta er alveg hrikalegt,“ segir Ívar. „Það er svolítið mikið af svona tielfnislausum árásum á djamminu. Mér finnst kominn tími til að fólk fari að hugsa sig aðeins um. Eins og þetta, ég er nefbrotinn útaf því að ég vildi ekki fara út úr bíl félaga míns. Svona gengur ekki lengur.“ Í upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi kemur fram að Ívar hafi strax verið mjög bólginn í andltinu eftir árásina og taldi læknir sem meðhöndlaði hann líklegt að um nefbrot væri að ræða og reyndist sá grunur á rökum reistur. Lögreglan segir að enginn hafi verið handtekinn vegna málsins. Ívar leitar nú vitna að árásinni og hyggst kæra árásarmanninn. Hann biður alla þá sem sáu árásina að hafa samband við sig eða lögregluna á Selfossi, sem fer með rannsókn málsins. Árásin átti sér stað um þrjúleytið og sat Ívar í grárri Benz-bifreið.
Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Innlent Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Innlent Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Innlent Fleiri fréttir Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Stefnir í norðanhríð í vikunni Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Þau skipa lista Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra Fyrirhugaðar aðgerðir gegn offitu harðlega gagnrýndar Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slys á Vesturlandsvegi Sunna Hlín leiðir lista Framsóknar áfram „Ákall eftir stjórnmálum sem snúast um umhverfisvernd og mannréttindi“ Sjá meira