Farþegagjald á Reykjavíkurflugvelli 141 prósenti hærra en árið 2011 Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 9. maí 2014 13:43 vísir/gva/vilhelm
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, segir að lækka þurfi opinber gjöld á innanlandsflug, í hvaða formi sem er. Þetta kom fram í svari hennar við skriflegri fyrirspurnSilju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanni Framsóknarflokks.Hún segir að á vegum ráðuneytisins sé starfshópur að hefja störf sem muni kalla eftir upplýsingum um stöðu virðisaukaskattsgreiðslna flugfélaga á innanlandsmarkaði um opinber gjöld á flugvélaeldsneyti. Niðurstöðu frá starfshópnum er að vænta í haust. Hanna Birna vísar í bókun flugráðs frá 5.desember 2012 þar sem sagt er að sívaxandi hækkanir á opinberum gjöldum á innanlandsflugið sé komið yfir þolmörk og muni það óhjákvæmilega bitna á farþegum. Þá segir að varað sé við að sjálfbærni í flugrekstri innanlands sé ógnað og samkeppnisskilyrði verulega veikt með óhóflegri gjaldtöku. „Efnahagshrun í landinu má ekki leiða til þess að rekstrarumhverfi innanlandsflugs verði varanlega skekkt sem getur síðar leitt til beinna opinberra útgjalda til þess að tryggja eðlilega þjónustu við búsetu fólksins í landinu,“ segir jafnframt í bókuninni. Í skriflegri fyrirspurn frá Haraldi Benediktssyni, þingmanni Norðvesturkjördæmis, segir að frá því að farþegagjald var lagt á árið 2011 hafi það hækkað um 141 prósent á Reykjavíkurflugvelli en sé óbreytt á öðrum flugvöllum landsins. Þá hafi lendingargjöld hækkað um 320 prósent frá árinu 2009 en um 83 prósent á öðrum innanlandsflugvöllum.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Sjá meira