Elstu álftir í Evrópu eru 28 ára og íslenskar Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 9. maí 2014 14:24 Sverrir segir að nauðsynlegt sé að pakka álftunum inn svo þær séu rólegar meðan verið er að skoða þær. MYND/SVERRIR THORSTENSEN
Tvær íslenskar álftir eru þær elstu í Evrópu. Aðra álftina merkti Sverrir Thorstensen, fuglamerkingamaður, sem unga árið 1986, sú er nú kölluð BXM. Hina álftin var merkt af Ólafi Einarssyni, árið 1988 en þá var hún að minnsta kosti tveggja ára, sú er kölluð NXF. Álftirnar eru því 28 ára í ár. Frá þeim var sagt á vefnum 641. BXM var merkt við Engivatn á Fljótsheiði í Suður - Þingeyjarsýslu og hefur sést nú í vor í Bárðardal. NXF á ásamt maka sínum óðal við Sigurðarstaðatjörn á Fljótsheiði.Hefur fylgst með álftinni síðan 1997 Álftirnar eru kallaðar eftir litamerkinu sem þær bera á fótum sér eftir litamerkingar. Árið 1986 var ekki byrjað að nota litmerki og því var BXM ekki litamerkt fyrr en Sverrir hitti á hana aftur sumarið 2013. Þá hafði hann ekki séð álftina frá því hann merkti hana sem unga árið 1986.Álftin BXM er nú 28 ára.MYND/SVERRIR THORSTENSEN„Þegar ég hitti hana aftur var hún pöruð og sjálf með tvo unga,“ segir Sverrir. Álftinni NXF hefur Sverrir hins vegar fylgst með í mörg ár. „Ég hef verið að sjá hana og taka hana öðru hvoru síðan 1997.“ Með því að taka álftina segist Sverrir eiga við það þegar hann merkir þær og mælir. Það gerir hann frá síðari hluta júlí og fram í ágúst en þá eru álftirnar ófleygar í fjaðrafelli. Hann fer á gúmmíbát út á tjarnir og nær til þeirra og pakkar þeim inn. Innpökkunin er nauðsynleg svo álftirnar séu rólegar á meðan verið er að skoða þær.Eiga sama maka meðan hann lifir Misjafnt er eftir álftum hvort þær eru hér á landi allt árið um kring eða fari til Bretlands yfir vetrartímann. Um 20 þúsund álftir fara til Bretlands og eru komnar hingað í mars og apríl tilað verpa. Um eitt til tvöþúsund álftir eru hér á landi allt árið um kring. Álftir verða kynþroska um fjögurra til sex ára og þær eignast yfirleitt unga á hverju ári eftir það. Þær taka yfirleitt yfir ákveðið óðal sem þær verja árlega fyrir öðrum álftum. Þær eiga sama makann á meðan hann lifir og þar skiptir aldur engu máli. Maki álftarinnar NXF er til dæmis talsvert yngri en hún en þau fara verið par síðan 1997.
Mest lesið Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Innlent Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Innlent „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innlent Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Innlent Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Erlent Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Erlent Öllu flugi dagsins aflýst Innlent Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Innlent Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Innlent Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Innlent Fleiri fréttir Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Goðamót í uppnámi og útlit fyrir sama veður fram á nótt Öllu flugi dagsins aflýst Öflug sprenging í Korngörðum og vonskuveður víða Misræmi talið í framburði konu sem sakaði Þorstein um áreitni Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Bein útsending: Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Eldur í rafgeymum hjá Hringrás Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Snjóflóðahætta og öfgakarlmennska áhrifavalda Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Milljarður í holufyllingar og Einar minnti á heilahristing Patta Lagt til að bílastæðum fjölgi við nýbyggingar Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Grunsamlegir póstar í umferð: „Tafarlaus aðgerð nauðsynleg“ Dælan anni ekki vatnsmagni Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavísitölu var samþykkt Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Minnisvarði um rauðsokkur rís í sumar Sjá meira