Verðum að breyta löggjöf um notkun bílbelta Atli Ísleifsson skrifar 17. júlí 2014 12:13 Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sent íslenskum stjórnvöldum tvö rökstudd álit þar sem hún hvetur stjórnvöld til að gera nauðsynlegar úrbætur í samræmi við ákvæði EES-reglna um umferðaröryggi. Vísir/Gunnar
Ísland verður að breyta löggjöf sinni um notkun öryggisbelta í bílum. Þetta kemur fram í áliti Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) þar sem einnig kemur fram að bæta þarf tæknilegt eftirlit úti á vegum með aksturshæfni vöruflutningabifreiða. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur sent tvö rökstudd álit til Íslands og þar sem hún hvetur stjórnvöld til að gera nauðsynlegar úrbætur í samræmi við ákvæði EES-reglna um umferðaröryggi. Í fréttatilkynningu ESA segir að fyrra rökstudda álitið varði brot Íslands á að framfylgja tilteknum ákvæðum tilskipunar (91/671/EEC) um skyldu til að nota öryggisbelti í vélknúnum ökutækjum undir 3,5 tonnum að hámarksþyngd. Í tilskipuninni séu ákvæði um hvenær barn megi sitja í framsæti og nota öryggisbelti ætlað fullorðnum. Segir að gildandi löggjöf á Íslandi uppfylli ekki öryggiskröfur tilskipunarinnar. „Síðara rökstudda álitið varðar brot Íslands á að framfylgja ákvæðum tilskipunar 2000/30/EC um tæknilegt eftirlit með aksturshæfni vöruflutningabifreiða úti á vegum. Á Íslandi eru tæknilegar skoðanir bifreiða á vegum úti ekki framkvæmdar reglulega eins og krafist er í tilskipuninni. Þá er skyldu til að afhenda ökumönnum skoðunarskýrslu á stöðluðu formi ekki fullnægt. Á Íslandi eru eftirlitsmönnum á vegum heldur ekki tiltæk nauðsynleg gögn við tæknilegt eftirlit, þ.e. nýleg vottorð um aksturshæfni eða nýlegar tæknilegar eftirlitskýrslur.“ Í tilkynningunni segir að íslensk stjórnvöld hafi viðurkennt þá annmarka á innleiðingu og framkvæmd beggja tilskipananna sem ESA benti á í formlegu áminningarbréfi í febrúar 2014. „Þau hafa tilkynnt að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á innlendri löggjöf. ESA hefur þó ekki fengið upplýsingar til staðfestingar á slíkum breytingum frá íslenskum stjórnvöldum. Útgáfa rökstudds álits er annað skrefið í formlegu samningsbrotamáli. Hafi viðkomandi ríki ekki gert viðeigandi ráðstafanir til þess að bregðast við rökstudda álitinu innan tveggja mánaða getur ESA vísað málinu til EFTA-dómstólsins.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Sjá meira