Innlent

Bíræfinn þjófur á Skólavörðuholtinu

Gissur Sigurðsson skrifar
Frá Skólavörðustíg.
Frá Skólavörðustíg. E.Ól
Þjófur braut sér leilð inn í bíl, sem stóð mannlaus á Skólavörðuholti um tíu leitið í gærkvöldi og stal þaðan talsverðum verðmætum. Meðal þess sem hvarf úr bílnum í hendur þjófsins eru ökuskírteini og greiðslukort bíleilgandans auk farsíma af dýrari gerðinni.

Engin vitni virðast hafa orðið af þesu og brýnir lögregla enn fyrir fólki að skilja ekki sýnileg verðmæti eftir í bílum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×