Innlent

Neyðarrás Landhelgisgæslunnar óvirk

Gissur Sigurðsson skrifar
Aðal neyðar- og útkallsrás stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar fyrir hafsvæðið umhverfis Ísland er mikilvægt öryggistæki fyrir sjófarendur.
Aðal neyðar- og útkallsrás stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar fyrir hafsvæðið umhverfis Ísland er mikilvægt öryggistæki fyrir sjófarendur. visir/daníel
Aðal neyðar- og útkallsrás stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar fyrir hafsvæðið umhverfis Ísland og reyndar á stóru hafsvæði á Norður-Atlantshafi, hefur verið óvirk frá því í gærkvöldi þar sem einhver sendir lokar hana af með því að senda stöðugt skilaboð eins og úr talhólfi.

Ekki er þó óttast að neinn sé í nauðum staddur, heldur að um mistök sé að ræða um borð í einhverju skipi, án vitneskju skipverja. Með aðstoð landsstöðva í Noregi og Grænlandi, auk samskipta við skip, hefur tekist að rekja sendingarnar þannig að þær virðast sterkastar norður af Íslandi, og er nú verið að kanna málið nánar, en rásin er mikilvægt öryggistæki fyrir sjófarendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×