Innlent

Kvótinn klárast á svæði eitt

Gissur Sigurðsson skrifar
Strandveiðibátar á svæði eitt.
Strandveiðibátar á svæði eitt. visir/pjetur
Nú er síðasti dagur strandveiða í þessum mánuði á veiðisvæði eitt, sem nær frá Snæfellsnesi inn í Ísafjarðardjúp, þar sem júlí-kvótinn er að klárast. Hann er líka mjög langt kominn á norðursvæðinu, þar sem útlit er fyrir að hann klárist fyrir helgi, ef veður leyfir.

Veiðarnar ganga heldur tregar á austur- og suðursvæðunum. Fjölmargir strandveiðibátar héldu til veiða umhverfis allt landið undir morgun, þar sem sjóveður er yfirleitt gott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×