Hælisleitandi í hungurverkfalli fluttur á sjúkrahús með hraði 27. apríl 2014 14:21 Vinur mannsins sagði í samtali við fréttastofu í dag að ekki hafi tekist að vekja hann í morgun.
Afganskur hælisleitandi, Ghasem Mohammadi, var fluttur á sjúkrahús í morgun en eins og fréttastofa greindi frá í fyrradag hefur hann verið í hungurverkfalli síðustu daga. Hann hefur beðið í tvö ár hér á landi eftir úrskurði um dvalarleyfi. Ghasem flúði frá Afganistan þegar hann var sextán ára gamall. Hann kom til Íslands árið 2012 þar sem hann sótti um pólitískt hæli. Umsókninni var hafnað á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ghasem hafði áður sótt um hæli í Svíþjóð. Samkvæmt reglugerðinni er hælisleitanda vísað aftur til þess ríkis þar sem hann sótti fyrst um hæli. Ghasem áfrýjaði til Innanríkisráðuneytisins og bíður enn eftir úrskurði. Vinur mannsins sagði í samtali við fréttastofu í dag að ekki hafi tekist að vekja hann í morgun og því hafi verið hringt á sjúkrabíl. Hann hafi verið fluttur á sjúkrahús með hraði og er hann þar enn. Hann mun vera með meðvitund, en þó of veikburða til þess að tjá sig.Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Sjá meira