Viðskiptabann á Noreg ógnar ferskfiskmörkuðum Íslands 10. ágúst 2014 14:35
Áhrif viðskiptabanns Rússa á Norðmenn getur haft skaðleg áhrif á íslensk fyrirtæki í fiskframleiðslu og útflutningi á fiski. Þetta segir Jón Steinn Elíasson, formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda, SFU. Sjávarútvegur í Noregi er ríkisstyrktur og er staða Íslands veik að sumu leyti gagnvart Norðmönnum vegna þess. Ísland er sem kunnugt er, ekki á viðskiptabannlista Rússa og mun njóta góðs af því á rússneskum markaði í síldar- og loðnusölu. Norðmenn munu vegna bannsins að öllum líkindum beita sér fyrir því enn meira á öðrum mörkuðum sem íslenskir seljendur eru á. Aðallega í sölu eldislax og þorsks. „Þegar að þessi fiskur, sem er gríðarlegt magn, og að ég tali nú ekki um þessa aukningu sem þeir eru að spá núna, sem gæti orðið fimm til tíu prósent. Sem eru nú einhver fimmtíu til sjötíu þúsund tonn til viðbótar þess sem þeir eru þegar með. Ef þetta fer allt inn á Evrópumarkað mun það hafa áhrif á okkar ferskfiskmarkað. Það er engin spurning,“ segir Jón Steinn Elíasson. „Þetta er tímabundið sem að þeir koma inn á markaði og lækka verðin. Norðmenn eru þekktir fyrir það að selja sína vöru. Þeir þurfa að selja hana. Þeir lækka verðið og kaupendur nýta þessa stöðu. Þetta getur haft veruleg áhrif á okkar ferskfiskmarkað sérstaklega.“ „Auðvitað mun þetta hafa áhrif á allan markaðinn, en ferskfiskmarkaðurinn getur orðið verulega illa úti,“ segir Jón Steinn. Hann segir að litlar líkur séu á að Norðmenn muni ekki herja á evrópskan markað með krafti vegna viðskiptabannsins, en staðan sé mjög viðkvæm. „Þetta bara þekkjum við. Sagan segir okkur hvernig þessi þróun hefur verið. Þetta gerist á hverju einasta ári. Til þess að þeir geti selt sínar vörur lækka þeir sig og verðið hrynur.“ Jóni finnst að í þessu máli þurfi utanríkisráðherra, sem og sjávarútvegsráðherra, að fara varlega. „Þetta er mjög eldfimt mál.“
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira