Fjögurra flokka meirihlutinn í borginni styrkist Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 23. desember 2014 07:00 Ákvörðun um að mynda fjögurra flokka meirihluta var umdeild á sínum tíma en fylgi meirihlutans hefur aukist frá kosningum. Fréttablaðið/Vilhelm
Fylgi allra flokka meirihlutans í borginni utan Samfylkingar hefur aukist ef marka má Þjóðarpúls Gallup. Af þeim flokkum sem sæti eiga í borgarstjórn styrkja Píratar sig mest, eða um tæp fimm prósentustig. Þannig mælist flokkurinn með 10,6 prósenta fylgi. Halldór Auðar Svansson, fulltrúi Pírata í borgarstjórn, segir þetta vissulega ánægjulega niðurstöðu. „Þetta sýnir að það virðist fara okkur vel að axla ábyrgð í borgarstjórn og taka þátt í meirihlutasamstarfi.“ Píratinn segir það greinilegt að flokkurinn eigi sterkan og stóran stuðningshóp en viðurkennir að hann hafi ekki skilað sér nógu vel á kjörstað í vor. Nafni hans Halldórsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, telur að fylgi Sjálfstæðisflokks muni aukast á kjörtímabilinu en samkvæmt könnuninni stendur flokkurinn nánast í stað og er með 25,3 prósenta fylgi. „Ég reikna með því að það eigi eftir að komast betur á framfæri því sem við höfum verið að leggja áherslu á og gera athugasemdir við.“ Björt framtíð myndi ná inn einum manni til viðbótar í borgarstjórn ef gengið yrði til kosninga nú en fylgi flokksins mælist nú 17,7 prósent. Þetta er aukning um tvö prósent en Vinstri hreyfingin – grænt framboð eykur fylgi sitt til jafns við Bjarta framtíð. Framsókn og flugvallarvinir myndu hins vegar missa annan fulltrúa sinna í borgarstjórn. Flokkurinn mælist með 5,6 prósenta fylgi sem er fimm prósentustiga lækkun frá kosningum. Samfylkingin mælist með minna fylgi en í kosningum, eða 28,9 prósent miðað við 31,9 prósent í vor. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segist ánægður með niðurstöðurnar. „Samstarfsflokkar okkar eru allir að bæta við sig. Það er mjög ánægjulegt. Við mælumst aðeins lægri en í kosningum en erum áfram stærsti flokkurinn og megum vel við una. Meirihlutinn í heildina er tæp sjötíu prósent,“ segir borgarstjórinn. „Allavega virðist þessi könnun benda til þess að við séum að gera eitthvað rétt.“
Mest lesið Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Innlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Innlent Fleiri fréttir Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Sjá meira