Lögreglan á Höfn tilheyrir Austurlandi til bráðabirgða Sveinn Arnarsson skrifar 8. desember 2014 09:30 Umdeild ákvörðun Síðasta verk Sigmundar Davíðs sem dómsmálaráðherra vekur hörð viðbrögð. Fréttablaðið/GVA
Lögregluembættið á Hornafirði verður til bráðabirgða undir lögreglustjóranum á Austurlandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá innanríkisráðuneytinu. Nýr innanríkisráðherra, Ólöf Nordal, ætlar að fara yfir skipan lögregluumdæma landsins og mun fara yfir þessa reglugerð frá 4. desember. Ákvörðun Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar um að sveitarfélagið Hornafjörður teljist til umdæmis lögreglustjórans á Austurlandi hefur vakið hörð viðbrögð. Reglugerðin var undirrituð af Sigmundi þann fjórða desember síðastliðinn, sama dag og tilkynnt var að Ólöf Nordal yrði næsti innanríkisráðherra.Jóhannes þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráðherra.Í fréttatilkynningu frá innanríkisráðuneytinu um reglugerð ráðherra er greint frá því að sveitarfélagið Hornafjörður teljist til umdæmis lögreglustjórans á Austurlandi þar til úttekt á rekstrarforsendum lögreglunnar á Austurlandi hefur farið fram. Samkvæmt Jóhannesi Þór Skúlasyni, aðstoðarmanni Sigmundar, var ástæða þess sú að áhyggjuraddir höfðu heyrst frá lögreglunni á Austurlandi og sveitarstjórnarmönnum á svæðinu. „Rekstrargrundvöllur lögreglunnar á Austurlandi hefur ekki verið nógu sterkur. Að mati heimamanna skipti það miklu máli að það samstarf sem hefur verið milli lögregluembætta á Höfn og á Austurlandi sé skoðað nánar og rekstrarforsendurnar endurmetnar,“ segir Jóhannes Þór. Því verður nú ráðist í það að skoða rekstur lögreglunnar á Austurlandi. Þegar því endurmati verður lokið mun ákvörðun verða tekin hvort lögreglan á Höfn muni tilheyra Suðurlandi eða Austurlandi. Gunnar Þorgeirsson, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, segir ákvörðun Sigmundar hafa komið á óvart. Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður allsherjarnefndar Alþingis, telur að það eigi að draga reglugerð Sigmundar til baka.Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri á Hornafirði.Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarðar, hefur sent þingmönnum kjördæmisins bréf þar sem hann undrast þessa skipan. Bæjarstjóri hafi fengið fundarboð hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi því hann hafi viljað hitta alla framkvæmdastjóra sveitarfélaga í sínu umdæmi. Vonast Björn Ingi eftir að þessi ákvörðun verði endurskoðuð. „Nýr lögreglustjóri Suðurlands hefur komið hingað og hitt starfsmenn lögregluumdæmisins á Höfn og í gangi er skipulagsvinna þessu tengd,“ segir Björn Ingi. „Í síðustu viku fékk ég fundarboð frá lögreglustjóra Suðurlands um að koma til fundar við hann í næstu viku þar sem hann ætlaði að hitta alla framkvæmdarstjóra sveitarfélaga í sínu umdæmi.“ Ný lög um skipan lögregluumdæma lögreglustjóra voru samþykkt þann 14. maí síðastliðinn. Þar er lögregluumdæmum fækkað úr 24 í níu og lögreglustjórum fækkað úr fimmtán í níu. Lögregluumdæmin eru Höfuðborgarsvæðið, Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland, Suðurland, Vestmannaeyjar og Suðurnes. Lögregluembættið á Höfn hefur frá árinu 2007 verið í samstarfi við lögregluna á Austfjörðum. Sú ákvörðun Sigmundar felur því ekki í sér neinar breytingar frá fyrri högum lögreglunnar í sveitarfélaginu Hornafirði. Ekki náðist í Sigmund sem var erlendis í gær.
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Sjá meira