Vilja skaðabætur frá bænum vegna skóla Hanna Ruth Ólafsdóttir skrifar 30. október 2014 07:00 Íbúar í nágrenni Krikaskóla hafa sumir höfðað mál á hendur Mosfellsbæ þar sem þeir halda því fram að byggingin rýri verðgildi eigna þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Átta íbúar í fjölbýlishúsinu að Stórakrika 1 sem og íbúar í einbýlishúsi að Stórakrika 11 í Mosfellsbæ hafa höfðað mál gegn bænum þar sem þeir telja að byggingin þar sem Krikaskóli er til húsa rýri verðgildi eigna þeirra. Fara þeir fram á skaðabætur frá einni til sjö milljóna króna vegna útsýnisskerðingar og hávaðamengunar.Jón Magnússon er lögmaður íbúa að Stórakrika 1.Jón Magnússon lögmaður, sem fer fyrir máli íbúanna að Stórakrika 1, segir að um stórtjón fyrir íbúana sé að ræða. „Þetta snýst um verðrýrnun þar sem skjólstæðingar mínir voru að kaupa eign í rólegu úthverfi en nú er allt í hávaðalátum, bjölluhringingum og mikilli umferð á öllum virkum dögum. Þetta er meiriháttar tjón fyrir einstaklinga þar sem við erum að tala um milljónir.“ Samkvæmt upphaflegu deiliskipulagi var gert ráð fyrir leikskóla á lóðinni en því var breytt eftir samkeppni um hönnun á starfi og útliti skólans með þeirri niðurstöðu að reisa skyldi í staðinn leik- og grunnskóla fyrir eins til níu ára gömul börn. Það fór því svo að skólinn fór úr því að vera á einni hæð yfir í tvær og stækkaði um tæplega helming frá upphaflegum teikningum. Gert var mat á aðstæðum íbúa í nærliggjandi húsum með þeirri niðurstöðu að Mosfellsbær féllst á að greiða fjórum íbúum í raðhúsalengju næst skólanum 1,4 til 1,9 milljónir í skaðabætur vegna þess tjóns sem þeir urðu fyrir vegna skerðingar á verðmæti eigna þeirra. Í því mati var ekki fallist á að íbúar í fjölbýlishúsi að Stórakrika 1 og í einbýlishúsi að Stórakrika 11 ættu rétt á skaðabótum. Farið var fram á að gert yrði yfirmat og var niðurstaðan úr því mati sú að íbúar í fyrrnefndum húsum ættu einnig rétt á bótum. Því hafnaði Mosfellsbær og er málið því nú fyrir dómi.Bryndís Haraldsdóttir, formaður skipulagsnefndar MosfellsbæjarBryndís Haraldsdóttir, formaður skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, segir að eftir mótmæli íbúa vegna breytinga á upphaflegu deiliskipulagi hafi bygging verið færð fjær nálægum húsum og þannig lækkað í landinu. „Einhverjir nágrannar sættu sig ekki við þetta og kærðu málið áfram, Mosfellsbær gerði tilraun til sáttar í málinu en það var ekki samþykkt af öllum aðilum. Þá leita þeir aðilar réttar síns fyrir dómstólum.“ Hún nefnir að Mosfellsbær sé ánægður og stoltur af Krikaskóla. „Bæði starfinu þar og byggingunni sjálfri og telur skólann vera til mikilla bóta fyrir bæinn og hverfið sjálft,“ segir Bryndís að lokum.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fleiri fréttir Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Sjá meira