Lífið

Íslandsfögnuður í Connecticut

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Snorri Helgason tónlistarmaður
Snorri Helgason tónlistarmaður Anton Brink
Fríður flokkur íslenskra tónlistarmanna kemur fram á hátíðinni Iceland Affair í Connecticut-fylki Bandaríkjanna um helgina.

Það eru þau Snorri Helgason, Lay Low, Svavar Knútur, Agnes Erna, Kristjana Stefánsdóttir, Myrra Rós og Björn Thoroddsen sem munu troða upp.

Það er Íslandsvinurinn og stofnandi ferðaskrifstofunnar Krummi Travel Gerri Griswold sem stofnaði hátíðina. Ásamt tónleikunum verður hægt að prófa íslenska matargerð og sjá íslenska hesta og fjárhunda.

Þá verður boðið upp á ýmsa áhugaverða fyrirlestra svo sem Blue-Eyed Pop eftir Dr. Gunna og fyrirlestur Jóns Baldurs Hlíðbergs um nýja „vandræðabarn“ Íslands, Bárðarbungu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.