Ósátt að fá ekki arfinn tveimur árum eftir andlát föður Hanna Ólafsdóttir skrifar 23. september 2014 07:00 Íbúðirnar sem eru fyrir 60 ára og eldri eru við Mánabraut og Sunnubraut í Þorlákshöfn. Fréttablaðið/Stefán „
Pabbi borgaði sjö milljónir fyrir búseturétt í sinni íbúð. Þann pening átti hann að fá aftur ef hann flytti út úr íbúðinni eða þá að peningurinn átti að greiðast til erfingja ef hann félli frá. Við höfum engan pening fengið tveimur árum eftir andlát hans og ekki fengið nein skýr svör um hvort við fáum hann yfirhöfuð, segir Halldóra Hafsteinsdóttir. Faðir Halldóru, Hafsteinn Sigurgeirsson, bjó í leiguhúsnæði á vegum Elliða, húsnæðissamvinnufélags eldri borgara í Þorlákshöfn. Fjölskyldan hefur nú tveimur árum síðar ekki fengið greiddan út búseturétt föðurins og því hafa ekki getað lokið við að gera upp dánarbúið. Elliði á 24 íbúðir sem ætlaðar eru 60 ára og eldri í Þorlákshöfn en félagið glímir við mikla fjárhagserfiðleika.Halldóra HafsteinsdóttirÓsátt við vinnubrögð félagsins Halldóra segir að íbúar og aðstandendur hafi ekki verið upplýstir um slæma fjárhagsstöðu félagsins og því hafi fregnir af rekstrarerfiðleikum félagsins komið þeim í opna skjöldu. Halldóra segir systkinin engin skýr svör hafa fengið frá félaginu varðandi hvort eða hvenær þau megi búast við að fá peningana. Hún er ósátt við stöðu mála. „Við fengum bara þau svör hjá félaginu að þau mættu ekkert gera og mættu ekki borga neitt út. Þau segjast vonast til þess að sveitarfélagið komi inn í þetta og það er kannski óskandi að það geri það. En ég er ósátt við viðbrögð félagsins og mér finnst að það hafi ekki verið staðið við neitt af þess hálfu. Við hefðum ekki skilað af okkur íbúðinni hefðum við vitað þetta. Félagið leigir íbúðina núna út og því má segja að félagið hafi hagnast áfram á okkur.“Skuldar tæpar 650 milljónir Til þess að öðlast búseturétt hjá Elliða þarf fólk að greiða fjórar til sjö milljónir en borgar eftir það mánaðarlega leigu. Ef einstaklingur flytur úr húsunum eða deyr þá fær hann eða eftirlifandi ættingjar greiddan til baka höfuðstólinn af því sem borgað var inn. Húsnæðissamvinnufélagið Elliði var stofnað árið 2004 af íbúum í kringum byggingu og rekstur íbúðarhúsa fyrir 60 ára og eldri í Þorlákshöfn. Félagið hefur nú byggt alls 24 íbúðir í parhúsum við Mánabraut og Sunnubraut í bænum. Byggingarnar voru fjármagnaðar með lánum frá Íbúðalánasjóði en heildarskuldir félagsins við Íbúðalánasjóð voru 644.107.754 krónur samkvæmt síðasta ársreikningi og skuldir vegna búseturéttar voru 141.293.694 krónur. Skammtímaskuldir félagsins hljóða upp á um fimm milljónir króna.Valur Rafn HalldórssonSegir lausn í sjónmáli Að sögn Vals Rafns Halldórssonar sem situr í verkefnastjórn Elliða eru fimm búseturéttir ófrágengnir. Valur segir að unnið sé að lausn mála í samvinnu við sveitarfélagið og að málið sé komið í ákveðinn farveg. Hann segir lagalega óvissu ríkja um hversu há upphæðin er vegna þessara fimm búseturétta en að nafnvirði sé upphæðin um 24 milljónir. Félagið hafi greitt út tvo búseturétti áður en fjárhagur þess versnaði en þá hafi ÍLS tekið fyrir að félagið greiddi frekari búseturétt út. „Það er ákveðin lausn í sjónmáli, sem við erum að vinna að í samvinnu við sveitarfélagið. Það eru auðvitað fleiri búsetufélög um land allt sem eru í svipaðri ef ekki verri stöðu,“ segir Valur sem kveður ástæður rekstrarerfiðleikanna ekki vera bruðl heldur forsendubresti við efnahagshrunið 2008. „Félagið er í skilum. Það er enginn framkvæmdastjóri hjá félaginu og enginn starfsmaður. Félagið hefur aldrei greitt neitt í laun hvorki til starfsmanna né stjórnar eða verkefnisstjórnar. Við eins og margir aðrir horfðum upp á lán tvöfaldast.“ Vonast til að traust íbúa aukistVarðandi framtíð Elliða segir Valur Rafn að hún sé óráðin. Verkefnisstjórn vinnur að því að finna lausnir á fjárhagsvanda félagsins. Sveitarfélagið hefur aðstoðað á þeirri vegferð og til standi að gera þjónustusamning við sveitarfélagið. „Með þjónustusamningnum munum við bæta þjónustu við íbúa, styrkja fjárhagslegan grundvöll félagsins sem og stöðugleika. Með auknum stöðugleika vonumst við til þess að traust íbúa og almennings til félagsins aukist og að það leiði til þess að einstaklingar verði aftur tilbúnir til að fjárfesta í búseturétti. Á borðinu liggur einnig tilboð frá ÍLS sem verkefnisstjórnin er að skoða,“ segir Valur Rafn Halldórsson.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira