Fór beint í varðhald eftir flug frá Svíþjóð Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. september 2014 07:00 Til stóð að vísa manninum úr landi með úrskurði og hafði innanríkisráðuneytið staðfest þann úrskurð. fréttablaðið/STEFán
Hælisleitandi sem kom hingað til lands þann 11. september frá Svíþjóð í fylgd sænskra fangavarða mun sæta gæsluvarðhaldi fram á næsta föstudag. Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurðinn í gær. Maðurinn kom hingað á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Maðurinn kom fyrst til Íslands í maí 2011, en fór til Svíþjóðar seinni partinn í maí síðastliðnum. Um leið og maðurinn kom hingað fyrr í þessum mánuði barst íslenskum yfirvöldum tilkynning frá yfirvöldum í Svíþjóð um að eiginkona mannsins og tveir barnungir drengir fyndust ekki. Hinn 10. maí síðastliðinn fór lögreglustjórinn á Suðurnesjum fram með kröfu þess efnis að maðurinn skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 6. júní. Sú krafa var byggð á því að maðurinn hefði sýnt af sér hegðun sem benti til þess að hann væri hættulegur, kynni að beita ofbeldi eða hótunum um ofbeldi ef hann væri laus. Hann hafði þá verið vistaður á geðdeild um skeið vegna gruns um alvarlegt geðrof. Þann 9. maí var hann útskrifaður af Landspítalanum þar sem starfsmenn þar töldu öryggi starfsmanna og sjúklinga deildarinnar í hættu vegna veru hans á deildinni. Frá þeim tíma er maðurinn kom fyrst hingað til lands hefur lögreglan haft afskipti af honum vegna meintra líkamsárása á aðra hælisleitendur, þjófnaðar, fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og vegna eftirlits lögreglu með heimilisaðstæðum hans. Útlendingastofnun hugðist þá senda manninn úr landi og hafði innanríkisráðuneytið staðfest þessa ákvörðun með úrskurði. Maðurinn yfirgaf þó landið að eigin frumkvæði þann 20. maí síðastliðinn þrátt fyrir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefði birt honum ákvörðun um að hann skyldi halda sig á ákveðnu svæði á Íslandi og sinna tilkynningarskyldu. Samkvæmt upplýsingum frá Interpol í Danmörku er maðurinn þekktur af þarlendum lögregluyfirvöldum vegna ofbeldismála. Yfirvöld þar í landi þekkja hann undir öðru nafni og öðrum fæðingardegi en hann hefur gefið upp hér. Samanburður á fingraförum hefur aftur á móti leitt í ljós að um sama mann er að ræða þrátt fyrir mismunandi nöfn og fæðingardaga. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness, sem fylgir Hæstaréttardómnum frá því í gær, segir að hegðun mannsins bendi til að hann sé hættulegur.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira