Rauða krossinum boðnir óskilamunir úr flugvélum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 24. september 2014 07:00 Farþegar virðast einkum gleyma hlutum í sætisvösum þegar þeir yfirgefa vélarnar. VÍSIR/ÓSKAR
Mikið af óskilamunum berst lögreglunni á Suðurnesjum frá Leifsstöð á hverju ári, að sögn Gunnars Björnssonar, skrifstofustjóra hjá embættinu. Hann segir þó nákvæma tölu fyrir hvert ár ekki liggja fyrir. „Að langmestu leyti er um að ræða bækur, fatnað og gleraugu. Einnig er eitthvað um farsíma, spjaldtölvur og álíka muni sem fólk virðist einkum gleyma í sætisvösum þegar það yfirgefur vélarnar,“ greinir Gunnar frá. Hann segir ganga misjafnlega að finna eigendur óskilamunanna, eins og gefi að skilja. „Sem betur fer er talsvert um að eigendur átti sig á hvar þeir gleymdu þeim og sæki þá eða kalli eftir þeim sé um erlenda ferðamenn að ræða. Sé eitthvað til að átta sig á sem vísar á eigandann er reynt að hafa samband við hann. Þegar tekst að hafa upp á eiganda er honum boðið upp á að óskilamunurinn sé sendur honum á hans kostnað og það er gert kjósi hann það.“ Verðmætir hlutir eru geymdir í að minnsta kosti eitt ár en aðrir skemur. Spurður hvað gert sé við óskilamuni þegar ekki tekst að finna eigendur þeirra segir Gunnar að leitað hafi verið til Rauða krossins og samtökunum boðnar bækur og fatnaður. „Það er einnig leitað til Fangelsismálastofnunar og fleiri stofnana hvað varðar móttöku á bókum. Dýrari munum, svo sem símum og spjaldtölvum, er eytt undir eftirliti lögreglu takist ekki að finna eigendurna.“ Að sögn Gunnars hefur óskilamunum fjölgað nokkurn veginn í hlutfalli við aukinn fjölda ferðamanna. Einn starfsmaður er í fullu starfi við umsjón óskilamuna og að reyna að koma þeim til skila. „Á mestu álagstímum kemur annar starfsmaður honum til aðstoðar.“ Gunnar segir að ef auka ætti þjónustustigið þyrftu starfsmenn að vera fleiri.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira