Ekki þess virði að tilkynna um atvinnusjúkdóma Svavar Hávarðsson skrifar 22. september 2014 07:00 Heilsutjón og samfélagskostnaður er margfalt meiri vegna atvinnusjúkdóma en vinnuslysa.
Vinnueftirlitinu berast mjög takmarkaðar upplýsingar um atvinnusjúkdóma hér á landi. Tilkynningar sem stofnuninni berast eru aðeins brot af því sem gera mætti ráð fyrir ár hvert og fyrir vikið tapast dýrmætt tækifæri til forvarna í samfélaginu. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, gerir vanskráningu atvinnutengdra sjúkdóma að umtalsefni í inngangi nýrrar ársskýrslu stofnunarinnar. Þar bendir hann á að árið 2010 var tilkynnt um átta tilfelli en 24 í fyrra, þar af 15 vegna vandamála sem tengjast myglusveppi en þau hafa verið mikið í sviðsljósinu. Eyjólfur segir ljóst að ný reglugerð um tilkynningu og skráningu atvinnusjúkdóma, sem tók gildi árið 2011, hafi litlum árangri skilað.Eyjólfur SæmundssonMargt kemur til, segir Eyjólfur. Orsakasamhengi getur verið flókið þegar kemur að atvinnusjúkdómum og tilkynningaskylda hvílir á herðum læknis, ekki atvinnurekanda. „Læknar virðast almennt tregir til að kveða upp úr um það að mestar líkur séu á að sjúkdómur orsakist af vinnuumhverfinu. Hér skiptir einnig máli að ekki eru greiddar bætur úr almannatryggingum vegna atvinnusjúkdóma með sama hætti og vinnuslysa og hagsmunir sjúklings af greiningu því ekki taldir miklir. Sá sem fyrir heilsutjóni hefur orðið getur vissulega leitað réttar síns í einkamáli fyrir dómstólum en það er torfarin leið. Að þessu leyti stöndum við langt að baki nágrannalöndunum þar sem betur er séð fyrir þessum hlutum og nefni ég Danmörku sem dæmi,“ skrifar Eyjólfur og bætir við að þetta leiði til þess að kostnaður einstaklinga og samfélagsins komi ekki upp á yfirborðið og hvati til forvarna verði minni en ella. Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins, segir að athugun innan Vinnueftirlitsins hafi leitt í ljós að búast mætti við allt að 200 tilkynningum á ári að lágmarki. Hér þarf þó að slá varnagla, segir Kristinn. Fjöldi tilfella tengdra myglusveppi kom til vegna þess að vandamálið kom upp á Landspítalanum. „Það leiddi til þess að fleiri hundruð starfsmenn á spítalanum voru skoðaðir. Einstaklingur tilkynnir sig veikan sem leiðir í ljós að hópur fólks er mögulega í hættu og þá eru úrbætur gerðar sem koma mörgum til góða,“ segir Kristinn og hnykkir á forvarnagildi eins tilfellis en jafnframt að það skekki nokkuð myndina sem dregin er upp í tölfræði um atvinnusjúkdóma.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Sjá meira