70 milljarðar fengust með hækkun skatta Jon Hákon Halldórsson skrifar 19. september 2014 07:00 Forystumenn í íslenskum stjórnmálum og viðskiptalífi ræddu stöðu ríkisfjármála á Grand Hóteli. fréttablaðið/GVA
Sú leið sem hefur verið farin til að loka fjárlagagatinu frá árinu 2009 hefur að mun meira leyti snúist um skattahækkanir fremur en hagræðingu ríkisútgjalda. Þetta kom fram í máli þeirrar Ásdísar Kristjánsdóttur, forstöðumanns efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, og Björns Brynjúlfs Björnssonar, hagfræðings hjá Viðskiptaráði Íslands, á fundi um fjárlagafrumvarpið og hagræðingu í ríkisrekstri í gær.Björn Brynjúlfur BjörnssonÍ máli Björns Brynjúlfs kom fram að til að loka 176 milljarða króna gati hefur aukning í skatttekjum numið 70 milljörðum króna. Samdráttur rekstrarútgjalda nemur aftur á móti einungis um 40 milljörðum kóna. Afgangurinn hefur verið brúaður vegna bættra efnahagsaðstæðna, sem hefur orðið til þess að draga úr bæði velferðarútgjöldum og fjármagnskostnaði ríkisins. Þá gagnrýndi Björn Brynjúlfur að til þess að draga úr ríkisútgjöldum hefði aðallega verið farin sú leið að minnka fjárfestingu, í stað þess að minnka rekstrarkostnað. Þannig hefði til dæmis fjárfesting í innviðum setið á hakanum en ekkert hefði verið gert til að draga úr launakostnaði ríkisins. Launakostnaðurinn væri sá sami og 2009. Með því væri verið að fresta vandanum en ekki takast á við hann. Ásmundur Einar Daðason, formaður hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar, tekur undir gagnrýni Björns Brynjúlfs. Hann segir frestun á nauðsynlegum framkvæmdum ekki vera raunverulega hagræðingu. Þetta sé því áhyggjuefni.Ásmundur Einar Daðason„Og við sjáum það til dæmis í viðhaldi á sviði vegamála þar sem vegakerfið hefur látið á sjá. Þar hefur verið skorið verulega niður og það mun koma í bakið á okkur síðar. Það sem við þurfum að vinna að er raunveruleg rekstrarhagræðing á ársgrunni sem skilar sér inn í rekstur ríkisins á hverju einasta ári og það held ég að verði ekki gert nema með því að vinna að því á sem flestum sviðum að ráðast í kerfisbreytingar,“ segir hann. Með auknum kerfisbreytingum eflist framleiðni ríkissjóðs og kostnaður lækki. „En það gerist ekki nema með kerfisbreytingum, annars bitnar það á þjónustu við almenning,“ segir Ásmundur.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira