Bærinn borgi bílastæði kirkjunnar Ingvar Haraldsson skrifar 19. september 2014 07:00 Arnór L. Pálsson segir varla gangandi um bílastæðið við Lindakirkju vegna þess hve gróft það sé. Fréttablaðið/Ernir
Sóknarnefnd Lindakirkju hefur óskað eftir því við Kópavogsbæ að bærinn borgi fyrir malbikun á bílastæðum fyrir utan kirkjuna. Sóknarnefndin hefur þegar fengið tilboð í verkið upp á ríflega fjórtán milljónir króna sem sóknarnefndin vonast til að fá greitt úr bæjarsjóði. „Við erum að fara fram á það því við eigum ekki til neitt til að fara í bílastæði vegna niðurskurðar sóknargjalda,“ segir Arnór L. Pálsson, formaður sóknarnefndar Lindakirkju, og bætir við að varla sé gangandi um bílastæðið sökum þess hversu gróft það sé. Kirkjan var tekin í notkun árið 2008. Bílastæðið hefur verið ómalbikað alla tíð auk þess sem kirkjan er ófullgerð að innan. Í bréfi sóknarnefndar segir að eftir að hafa safnað fé undanfarin sjö ár standi til að klára að innrétta kirkjuna. Sóknin hafi hins vegar ekki efni á að malbika bílastæðið sjálf og því sé leitað á náðir Kópavogsbæjar. „Til þess að borga þurfa að vera til peningar. Það hefur orðið svo mikil skerðing á sóknargjöldum að við rétt höfum fyrir daglegum rekstri,“ segir Arnór. Auk þess séu fordæmi fyrir að Kópavogsbær hlaupi undir bagga með kirkjum vegna malbikunar. „Bærinn hefur nú komið að bílastæðum kirkna áður, til dæmis í Digraneskirkju,“ segir Arnór. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs þann 11. september síðastliðinn þar sem því var vísað til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira