Þriðjungur þjóðarinnar tók þátt í Menningarnótt Erla Björg Gunarsdóttir skrifar 18. september 2014 08:00 Samkvæmt könnun Gallup lagði þriðjungur þjóðarinnar leið sína í miðborgina á menningarnótt 23. ágúst síðastliðinn. vísir/ernir
Jákvæðni gagnvart menningarnótt hefur farið vaxandi undanfarin ár og eftir síðustu hátíð í ágúst er leið sagðist tæplega helmingur vera mjög jákvæður gagnvart hátíðinni en 76 prósent landsmanna voru mjög og frekar ánægð. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Gallup en ánægja með menningarnótt hefur verið mæld frá árinu 2006. Þriðjungur þjóðarinnar tók þátt í menningarnótt í ár sem er töluverð aukning frá því í fyrra þegar fjórðungur tók þátt. Þátttaka frá árinu 1999 hefur verið frá rúmum tuttugu prósentum og alveg upp í 39,3 prósent árið 2011.Einar Bárðarson, forstöðumaður Höfuðborgarstofu..Einar Bárðarson, forstöðumaður Höfuðborgarstofu, segir að vaxandi ánægja og þátttaka þjóðarinnar í menningarnótt sé tilkomin vegna sameiginlegrar vinnu allra sem komið hafa að hátíðinni. „Með hverri menningarnótt bætist í reynslubankann og undanfarin nítján ár hafa hundruð manna lagt þar ríkulega inn. Það á við um listafólk sem leggur til viðburði, öryggisaðila sem koma að skipulagningu á öryggi og aðgengi, fyrirtæki sem leggja til fjárhagslegan stuðning, fyrrverandi og núverandi starfsfólk á Höfuðborgarstofu og öðrum sviðum Reykjavíkurborgar auk fjölda annarra samstarfsaðila.“ segir Einar en á næsta ári fagnar menningarnótt 20 ára afmæli.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira