Hundar réðust að lömbum og átu þau lifandi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. september 2014 07:00 Jökull Helgason og Hildur Sigurðardóttir með lömbin sem tveir hundar drápu fyrir þeim á miðvikudag í síðustu viku. Fréttablaðið/GVA „
Þetta var í svæsnari kantinum,“ segir Guðmundur Bjarnason dýralæknir um aðkomuna að fimm lömbum sem tveir hundar drápu á bænum Ósabakka á Skeiðum í síðustu viku. Hildur Sigurðardóttir, bóndi á Ósabakka, segir að á miðvikudagsmorguninn hafi hún fengið ábendingu um að ekki væri allt með felldu hjá kindahópi í hólfi skammt frá bænum. Tveir hundar, annar hreinræktaður labrador en hinn labradorblendingur, voru hjá fénu. „Þetta er það ljótasta sem þeir sem að komu hafa nokkurn tíma séð. Þeir átu undan þeim lærin lifandi. Þeir voru með eitt lamb sem þeir voru að djöflast í þegar ég kom,“ segir Hildur sem tókst að handsama yngri hundinn en sá eldri forðaði sér. Á vígvellinum voru þrjú dauð lömb. „Það var búið að éta alveg undan þeim lærin svo skein bara bókstaflega í bein. Tvö önnur voru á lífi og þau voru hræðilega útleikin, þeir átu þau lifandi. Annað lambið sem var lifandi voru þeir búnir að éta frá hálsi og niður á bóg svo skein í beinin. Þetta er svo hryllilegt að fólk trúir því ekki nema sjá það,“ segir Hildur. Hundarnir höfðu étið annað lærið undan hinu særða lambinu inn að beini. Lömbin tvö voru aflífuð. Þess utan var eitt lamb drukknað í skurði. „Féð tryllist náttúrlega af hræðslu en hafði ekki mikil undanfæri. Það voru þrjár kindur sem voru fastar í vírnum og við björguðum,“ segir Hildur sem kveður upplifunina hafa verið óraunverulega. „Maður fer í þannig ástand að maður gerir það sem þarf að gera. Svo kemur áfallið eftir á.“Þetta lamb var lifandi þegar að var komið þrátt fyrir að hundarnir hafi étið það inn að beini frá hálsi niður í bóg.Fréttablaðið/GVAHundarnir voru hvor frá sínu heimilinu á tvíbýli í nágrenninu. Hundurinn sem handsamaður var á staðnum var fljótlega aflífaður og svæfa átti hinn hundinn í gær. „Þetta eru dýrbítar og það er búið að tendra þá og ekki hægt að treysta þeim eftir þetta,“ segir Guðmundur Bjarnason dýralæknir. Húsbóndinn á Ósabakka, Jökull Helgason, var við smalamennsku inni á afréttum þegar hundana bar að garði en sá ummerkin er hann kom til byggða. „Maður hefur upplifað ýmislegt en þetta er alger óhugnaður og svo viðbjóðslegt að lömbin væru lifandi hálfétin,“ segir Jökull sem er ríflega fimmtugur og hefur átt kindur frá því að hann man eftir sér. Hann kveður enn óljóst hversu tjónið sé mikið. „Það eru fjögur lömb til viðbótar örkumla og það er verið að reyna að bjarga þeim með pensilíni.“ Lögreglan hefur málið til rannsóknar.
Tengdar fréttir Svæfður eftir að hafa drepið fimm kindur Eigandi fjárins náði öðrum hundinum og kom honum í hendur hundaeftirlitsmanns. Hinn hundurinn slapp. 15. september 2014 10:40 Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira
Svæfður eftir að hafa drepið fimm kindur Eigandi fjárins náði öðrum hundinum og kom honum í hendur hundaeftirlitsmanns. Hinn hundurinn slapp. 15. september 2014 10:40