Tuttugu prósenta hækkun launa á þriggja ára tímabili Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. september 2014 07:15 Heildarlaun félaga í Starfsmannafélagi ríkisins í fullu starfi hafa hækkað um rúmlega 26 þúsund. fréttablaðið/ernir
Heildarlaun félaga í Starfsmannafélagi Ríkisins í fullu starfi hafa hækkað um rúmlega 26 þúsund krónur frá því í janúar í fyrra, samkvæmt nýrri launakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir félagið. Þetta er rúmlega 7 prósenta hækkun. Meðaltal heildarlauna í könnuninni nú voru 398 þúsund en voru 372 þúsund fyrir ári og 352 þúsund fyrir tveimur árum fyrir fullt starf. Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, hefur áhyggjur af hinum launalægstu. „Þetta eru lág laun sem við erum að horfa upp á. Fimm lægstu prósentin eru með ansi lág laun, um 245-250 þúsund. Það er vandamál hvað lægsti hópurinn hefur það alltaf skítt. Þótt menn reyni að hífa hann upp þá tekst það í ákveðinn tíma og svo eru aðrir farnir fram úr honum og hann situr einhvern veginn alltaf eftir. Ég á ekki skýringar eða ráð um það hvernig í ósköpunum á að takast á við þetta,“ segir Árni Stefán en bætir því við að hann vonist til að þeir sem eru í lægsta hópnum séu menn sem ekki hafi verið með mjög mikla fjölskylduábyrgð.Árni Stefán JónssonLaun starfsmanna innan SFR hafa að meðaltali hækkað um um það bil 7 prósent síðastliðin þrjú ár, eða alls um 20 prósent. „Síðustu þrjú ár hefur okkur tekist betur upp prósentulega en oft áður. Þrátt fyrir allt hafa kjarasamningar síðustu ár lagt áherslu á lægstu launin sem skilar okkur eitthvað hærri prósentu.“ Árni Stefán segir þó að opinberir starfsmenn eigi langt í land með að ná starfsmönnum á almenna markaðnum. „Þarna er allt upp undir 17 prósenta munur sem almenni markaðurinn er hærri um og við höfum reynt að halda aðeins betur í við þá síðustu árin,“ segir hann. Heildarlaun félaga hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar hafa hækkað um 5 prósent frá því í könnuninni fyrir ári. Á þremur árum hafa þau hækkað um átján prósent. „Áhyggjuefnið er að það kemur fram mikil óánægja með launin og það er meiri starfsmannavelta,“ segir Garðar Hilmarsson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. „Það er þetta sem sló mig mest,“ segir hann. Í könnuninni kemur fram að rúmlega sjö af hverjum tíu séu óánægðir með launakjör sín. Þetta hlutfall er heldur hærra en í síðustu könnunum. Meiri óánægja mælist á meðal kvenna en karla. Um 60 prósent félagsmanna í SFR eru óánægðir með launin, en ánægja með laun hefur verið svipuð síðustu fjögur ár. Karlar eru örlítið ánægðari með sín laun en konur.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Fleiri fréttir Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Sjá meira