Forstjórinn ætlar að láta rífa bústaðinn Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. september 2014 07:00 Sumarhúsið í Riðvík sem er nýlega klætt að utan verður fjarlægt ásamt stóru bátaskýli sem reist var 1998. Fréttablaðið/Pjetur
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, segir að sumarbústaður fyrirtækisins við Þingvallavatn verði rifinn. Þetta kemur fram í grein sem Bjarni ritar í Fréttablaðið í dag. Um er að ræða svokallaðan forstjórabústað Orkuveitunnar í Riðvík við Þingvallavatn í landi Nesjavalla sem Hitaveita Reykjavíkur keypti árið 1964. „Jörðinni fylgdi lítill sumarbústaður í Riðvík og hefur hann stundum verið kallaður forstjórabústaðurinn innan Orkuveitunnar. Að auki eru þar tíu aðrir sumarbústaðir í einkaeigu meðfram vatnsbakkanum. Einkabústaðirnir standa á leigulandi úr Nesjavallajörðinni,“ segir Bjarni. Eins og fram hefur komið fól stjórn Orkuveitunnar í júní Bjarna „að leita til að ljúka nýtingu landsins undir sumarhús“. Var þar með hætt við ákvörðun frá því 2011 um að selja leigulóðirnar undir sumarbústöðum einkaaðilanna. Bjarni segir að við nánari skoðun hafi verið talið óráðlegt að Orkuveitan missti forræði yfir svæðinu til frambúðar. „Ég þekki ekki notkunarsögu bústaðarins í Riðvík en nafngiftin bendir til þess að hann hafi verið notaður af forstjórum Orkuveitunnar að einhverju marki eða að þeir hafi haft ráðstöfunarrétt yfir honum,“ segir Bjarni. Fréttablaðið hefur ekki fengið skýr svör frá Orkuveitunni um notkun á bústaðnum að undanförnu.Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.Þá rifjar Bjarni upp að ný stjórn hafi tekið við Orkuveitunni 2010 og ráðið nýjan forstjóra til hálfs árs. „Tóku nýja stjórnin og forstjórinn meðal annars þá ákvörðun að afnema öll sérréttindi stjórnenda í Orkuveitunni. Einkaafnot eða forgangur að húseignum Orkuveitunnar heyrðu þar undir,“ skrifar Bjarni sem sjálfur hóf störf í Orkuveitunni 1. mars 2011. „Ákvæði um einkaafnot mín af bústaðnum í Riðvík er ekki að finna í ráðningarsamningi og vissi ég ekki á þeim tíma að bústaðurinn væri til. Sú hugmynd var rædd um þetta leyti að afhenda starfsmannafélagi Orkuveitunnar bústaðinn til útleigu fyrir félagsmenn. Bústaðurinn stendur á viðkvæmu vatnsverndarsvæði sem útilokaði þá hugmynd,“ skrifar Bjarni. Viðræður við eigendur sumarhúsanna á leigulóðunum standa enn. „Ljóst er að það mun taka nokkurn tíma að ná endanlegu markmiði og þarf Orkuveitan að huga að góðu meðalhófi í framgöngu,“ segir forstjórinn og bætir við: „Bústaður Orkuveitunnar í Riðvík stendur næst vatnsbólinu á Grámel og því mun hann víkja fyrstur en ákveðið hefur verið að rífa hann næsta sumar.“
Tengdar fréttir Orkuveituforstjóri hefur bústað við Þingvallavatn til umráða Þótt Orkuveitan hafi í kjölfar hrunsins keppst við að grynnka á skuldum með því að selja eignir sem ekki tengjast rekstrinum er sumarhús við Þingvallavatn sem ætlað er forstjóranum ekki á söluskrá. Húsið er sagt lítið notað sökum ástands en lítur samt óað 5. september 2014 07:00 "Forstjórabústaður“ Orkuveitunnar og umhverfismál Nesjavallavirkjunar Fréttablaðið og Stöð 2 hafa undanfarna daga fjallað um svokallaðan forstjórabústað Orkuveitu Reykjavíkur við Þingvallavatn og um þá ákvörðun stjórnar Orkuveitunnar, sem tekin var í lok júní síðastliðnum, "að leita leiða til að ljúka nýtingu landsins undir sumarhús“ eins og segir orðrétt í fundargerð. 10. september 2014 07:00 Hefur ekki komið í bústaðinn í tvö ár Upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar segir að bústaðurinn hafi lítið sem ekkert verið notaður undanfarin ár vegna þess hversu slæmu ástandi hann er í. 5. september 2014 19:30 Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Sjá meira
Orkuveituforstjóri hefur bústað við Þingvallavatn til umráða Þótt Orkuveitan hafi í kjölfar hrunsins keppst við að grynnka á skuldum með því að selja eignir sem ekki tengjast rekstrinum er sumarhús við Þingvallavatn sem ætlað er forstjóranum ekki á söluskrá. Húsið er sagt lítið notað sökum ástands en lítur samt óað 5. september 2014 07:00
"Forstjórabústaður“ Orkuveitunnar og umhverfismál Nesjavallavirkjunar Fréttablaðið og Stöð 2 hafa undanfarna daga fjallað um svokallaðan forstjórabústað Orkuveitu Reykjavíkur við Þingvallavatn og um þá ákvörðun stjórnar Orkuveitunnar, sem tekin var í lok júní síðastliðnum, "að leita leiða til að ljúka nýtingu landsins undir sumarhús“ eins og segir orðrétt í fundargerð. 10. september 2014 07:00
Hefur ekki komið í bústaðinn í tvö ár Upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar segir að bústaðurinn hafi lítið sem ekkert verið notaður undanfarin ár vegna þess hversu slæmu ástandi hann er í. 5. september 2014 19:30