Stjórnarmaður í Orkuveitunni býst við skýringum á notkun á Þingvallabústað Garðar Örn Úlfarsson skrifar 9. september 2014 07:15 Forstjórabústaður Orkuveitunnar við Þingvallavatn er sagður munu hverfa fyrstur ef sumarhúsabyggðin í landi fyrirtækisins við Þingvallavatn verður aflögð. Fréttablaðið/Pjetur „
Ég vissi að það væri bústaður þarna einhvers staðar en mér var aldrei sagt að það væri bústaður sem forstjórinn einn hefði aðgang að,“ segir Kjartan Magnússon, stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur. Kjartan hefur setið í stjórn OR fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá árslokum 2007. Hann segir upplýsingar sem fram komu í Fréttablaðinu í liðinni viku um svokallaðan forstjórabústað OR í landi Nesjavalla við Þingvallavatn hafa komið sér í opna skjöldu. Hann hafi heyrt um bústaðinn og talið að hann væri einn þeirra sem starfsmannafélag OR ræður yfir.Kjartan Magnússon, stjórnarmaður í Orkuveitunni.Fréttablaðið/Anton„Það var ekkert talað um að forstjórinn hefði eitthvað með bústaðinn að gera; réði honum og hefði hann fyrir sig. Maður hafði á tilfinningunni að þetta hús væri í niðurníðslu og að hruni komið. Svo sá maður í fréttunum að þetta er að minnsta kosti nothæft,“ segir Kjartan. Eins og sést hefur í umfjöllun Fréttablaðsins virðist bústaðurinn í fyrirtaks ástandi. Fram kom í svörum Eiríks Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa Orkuveitunnar, til Fréttablaðsins í liðinni viku að forstjóri fyrirtækisins hefði ráðstöfunarrétt yfir Þingvallavatnsbústaðnum. Síðar sagði Bjarni Bjarnason forstjóri að það væri ekki rétt. Sjálfur hefði hann ekki notað bústaðinn lengi en að líklega hefðu einhverjir framkvæmdastjórar hjá Orkuveitunni dvalið í húsinu.Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar.Fréttablaðið/GVA„Hann var síðast notaður seinni part júlímánaðar en eins og fram hefur komið þá var forstjórinn ekki þar á ferð,“ svarar Eiríkur ítrekaðri fyrirspurn Fréttablaðsins um hverjir hafa notað forstjórabústaðinn og hvenær. Aðspurður segist Kjartan eiga von á því að gefnar verði skýringar á notkun hússins á vettvangi stjórnar Orkuveitunnar. Fram hefur komið að til standi að leggja af sumarhúsabyggð í Nesjavallalandinu, meðal annars vegna vatnsbóls sem þar er. Bjarni forstjóri hefur sagt við Fréttablaðið að verði niðurstaðan það verði bústaður Orkuveitunnar fyrstur til að hverfa.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira