Aðgerðir gegn Ísrael boðaðar næstu daga Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 26. ágúst 2014 08:00 Stjórn sniðgönguhreyfingar: Linda Ósk Arnardóttir, tengiliður við Félagið Ísland-Palestína, Yousef Ingi Tamimi aðgerðastjóri, Steinunn Rögnvaldsdóttir ritstjóri og Sema Erla Serdar, formaður hinnar nýstofnuðu hreyfingar. vísir/stefán
Sniðgönguhreyfing fyrir Palestínu hefur verið formlega stofnuð á Íslandi. Tilgangur hreyfingarinnar er að svara alþjóðlegu ákalli Palestínumanna um sniðgöngu og þvinganir gegn ísraelskum stjórnvöldum. Markmiðum hreyfingarinnar telst náð þegar Ísrael fer að alþjóðalögum og viðurkennir grundvallarréttindi Palestínumanna, og mun þá hreyfingin vera lögð niður. Sema Erla Serdar, formaður hreyfingarinnar, segir að í viðskiptum sé alltaf valkostur og að á næstu dögum og vikum verði boðaðar aðgerðir. „Fullt af fólki á von á fullt af bréfum frá okkur. Við munum upplýsa almenning um hvaða vörur eru frá Ísrael og hvetja fyrirtæki sem flytja inn vörur frá Ísrael til þess sama. Ef stjórnendur fyrirtækja eru ekki tilbúnir til sniðgöngu gerum við þá kröfu að vörurnar verði skýrt merktar frá Ísrael.“ Hreyfingin mun einnig gera þá kröfu til stjórnvalda að bregðast við ástandinu, að viðskiptaþvingunum verði beitt gegn Ísrael og stjórnmálasambandi slitið. Sema Erla segir að ganga verði alla leið enda snúist málið um brot Ísraelsmanna á alþjóðalögum trekk í trekk á meðan alþjóðasamfélagið er algjörlega lamað og horfi upp á kúganir gegn Palestínumönnum. „Það var til dæmis leiðinlegt að sjá utanríkisráðherra kalla eftir viðbrögðum frá alþjóðasamfélaginu. Það er eins og hann hafi ekki gert sér grein fyrir því að við erum líka hluti af þessu alþjóðasamfélagi,“ segir Sema Erla og bætir við að Ísraelar eyði gríðarlegum fjármunum í hernað og uppbyggingu landnemabyggða og því sé sniðganga á framleiðslu afar áhrifarík leið. Fjármálaráðherra Ísraels hefur lýst yfir að ef Evrópubúar halda áfram að sniðganga vörur frá Ísrael muni efnahagurinn í Ísrael horfa á eftir 5,7 milljörðum dollara og um tíu þúsund störfum.Dæmi um vinsælar ísraelskar vörurInnflutningur frá Ísrael Í fyrra voru fluttar inn vörur frá Ísrael fyrir tæpar 720 milljónir króna samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Eingöngu á fyrstu sex mánuðum þessa árs var flutt inn fyrir rúmar 377 milljónir króna. Það lítur því út fyrir að innflutningur frá Ísrael til Íslands verði fyrir hærri upphæð á þessu ári en því síðasta. Snyrtivörur, matvæli og iðnaðarefni eru meðal vinsælla ísraelskra vara á íslenskum markaði.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira