Athugasemdir ÖSE enn til skoðunar Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 10. júlí 2014 10:30 Fulltrúar ÖSE fylgjast með á kjörstað í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fréttablaðið/Daníel „
Við höfum sjálfsagt flest talið að þar sem við búum í rótgrónu lýðræðisríki þá væri kosningalöggjöfin í góðu lagi. Ábendingar ÖSE gefa hins vegar til kynna að það þurfi að laga ýmislegt,“ segir Guðmundur Steingrímsson sem á sæti í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Guðmundur segir mikilvægt að hlusta á þessar ábendingar. Fulltrúar frá Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu ÖSE komu hingað til lands til að fylgjast með alþingiskosningunum 2009 og gerðu athugasemdir við framkvæmd kosninganna. Fulltrúar ÖSE komu aftur í fyrra og ítrekuðu fyrri athugasemdir. Stjórnvöld hafa ekki enn gert nauðsynlegar stjórnarskrár- eða lagabreytingar til að koma til móts við athugsemdirnar. Í svari Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar, VG, um hvað stjórnvöld hafi aðhafst kemur fram að tvær nefndir hafi verið skipaðar. Annars vegar stjórnarskrárnefnd þar sem sæti eiga fulltrúar allra flokka. Ýmis ákvæði stjórnarskrárinnar fjalla um framkvæmd kosninga og til að koma til móts við athugasemdir ÖSE þarf að breyta stjórnarskránni. Þá hefur forseti Alþingis skipað nefnd fulltrúa innanríkisráðuneytisins, landskjörstjórnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga og á hún að endurskoða ýmis ákvæði laga sem snúa að framkvæmd kosninga. Ein helsta athugasemd ÖSE varðar jöfnun atkvæðisréttar en til að jafna hann þarf að breyta stjórnarskrá. Innanríkisráðherra segir að gert sé ráð fyrir að stjórnarskrárnefnd taki þetta atriði til skoðunar. „Miðað við hvernig fór fyrir stjórnarskrármálinu á síðasta kjörtímabili þá er maður ekki sérlega bjartsýnn á að þessu verði breytt. Það náðist þó að gera þær breytingar að það er hægt að breyta stjórnarskránni á kjörtímabilinu með þjóðaratkvæði,“ segir Guðmundur. Aðrar athugasemdir ÖSE varða meðal annars eftirlit með kosningum, endurskoðun á rétti framboða til aðgengis að RÚV, utankjörfundaratkvæðagreiðslur og ýmislegt fleira. „Sem lýðræðisríki eigum við að fara í það af krafti að laga það sem þarf að laga,“ segir Guðmundur.
Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent Segist saklaus Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Innlent Fleiri fréttir Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Sjá meira