Ekki komust allir á sjó sem vildu Samúel Karl Ólason skrifar 6. maí 2014 08:00 Fjöldi báta var á sjó í gær, en þó fækkar þeim á milli ára. Veiðar gengu vel víða um land, en þó ekki á Húsavík og bræla var við sunnanvert landið. Vísir/Stefán
Á milli 750 og 770 skip voru á sjó í gær þegar mest var, samkvæmt upplýsingum frá Vaktstöð siglinga. Þar af voru tæplega 400 strandveiðibátar. Það mun þó ekki vera mikið miðað við oft áður, en mest hafa um þúsund skip verið á sjó í einu. Í gær höfðu Fiskistofu borist um 430 umsóknir um strandveiðileyfi, en á fyrsta degi veiða í fyrra voru þær 465. Fyrir daginn í gær höfðu 380 leyfi verið virkjuð og því ljóst að ekki komust allir af stað sem vildu. Umsóknir á svæði A eru 199, á svæði B eru þær 79, á svæði C eru þær 56 og á svæði D eru þær 94. Eldur kom upp í stýrishúsi strandveiðibáts á Breiðafirði í gærmorgun. Einn maður var um borð og gekk honum vel að slökkva eldinn, en báturinn var þó vélarvana og þurfti að draga hann í land. Ekkert annað alvarlegt atvik kom upp í gær, samkvæmt Vaktstofunni, en þó urðu einstaka bilanir. Fréttablaðið hafði samband við nokkra hafnarverði hringinn í kring um landið til að kanna hvernig veiðar hefðu gengið. Vel gekk á vestanverðu landinu og virðist sem mörgum hafi tekist að fá skammtinn, sem er 650 kíló talið í þorskígildum. „Það er nóg að gera hérna í Ólafsvík,“ segir Þórður Björnsson hafnarvörður. Um 35 bátar reru frá Ólafsvík í gær. „Það var ágætis fiskirí og flestir komu með skammtinn. Þetta er alveg ljómandi og það er bara gaman að þessu,“ segir Þórður. „Þetta er bara fínt og það hefur öllum gengið vel almennt,“ segir Heiðar Hermannsson, hafnarvörður í Bolungarvík. Hann segir um 27 til 30 báta hafa róið þaðan. Hann segir flesta hafa náð skammtinum og fiskurinn hafi verið fínn. „Þetta er bara í fínu lagi og það gengur bara vel.“ Á Húsavík gengu veiðar ekki vel í gær og af þeim sex bátum sem reru þaðan fékk enginn yfir 200 kíló. „Þetta var frekar dapurt fyrsta daginn, en það mesta sem náðist voru 195 kíló,“ segir Hjálmar Hjálmarsson, hafnarvörður á Húsavík. Hann segir að bátum sem róið sé frá Húsavík eigi eftir að fjölga en einhverjir, sem enn séu á grásleppuveiðum, ætli á strandveiðar. Tólf til fimmtán fóru til veiða frá Djúpavogi. „Það gekk vel og flestir þeirra náðu um það bil skammtinum,“ segir Stefán Guðmundsson hafnarvörður. Frá Hornafirði fór enginn á sjó í gær vegna brælu.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira