Innlent

Vilja ákvæði um keimlíkindi burt

Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar
Samkvæmt frumvarpi um ÁTVR fær fyrirtækið heimild til að meta hvenær hætta sé á að fólk ruglist á áfengum og óáfengum drykkjum. Ákvæðið hefur verið gagnrýnt.
Samkvæmt frumvarpi um ÁTVR fær fyrirtækið heimild til að meta hvenær hætta sé á að fólk ruglist á áfengum og óáfengum drykkjum. Ákvæðið hefur verið gagnrýnt. Fréttablaðið/GVA
Samtök iðnaðarins telja að með svokölluðu keimlíkindaákvæði í frumvarpi til laga um ÁTVR sé verið að þvinga framleiðendur áfengra drykkja til að velja á milli þess að markaðssetja áfenga vöru eða ófáfenga hér á landi.

Þeir telja að önnur hvor varan verði útilokuð á markaði hér á landi. Þá telja samtökin að ákvæði frumvarpsins um keimlíkindi séu í andstöðu við skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum.

Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur lokið umfjöllun um frumvarp til laga um ÁTVR. Frumvarpið hefur hlotið misjafnar viðtökur en það hefur verið gagnrýnt að ÁTVR hafi of víðtækar heimildir til að hafna því að taka taka áfengi í sölu.

Efnahags- og viðskiptanefnd segir í álitinu að keimlíkindaákvæði frumvarpsins þurfi að vera afdráttarlausara og miða að því að heimila ÁTVR að hafna því að taka til sölu áfengi þegar raunveruleg ruglingshætta virðist vera yfirvofandi.

Samkvæmt frumvarpinu á ÁTVR að meta það hvenær hætta sé á að fólk ruglist á áfengum og óáfengum tegundum.

Markmið keimlíkindaákvæðisins sé að tryggja að ekki séu á boðstólum áfengar vörur sem líkjast um of óáfengum vörum sem seldar eru eða auglýstar á almennum markaði hérlendis. Þá verði ákvæðið að standast kröfur ESA og Evrópuréttarins.

Ragnheiður Héðinsdóttir, forstöðumaður matvælasviðs Samtaka iðnaðarins, segir að sú breyting sem nefndin leggur til á keimlíkindaákvæðinu sé þýðingarlaus.

„Eftir sem áður er ÁTVR falið að meta hvenær vörur séu svo líkar að verslunin verði að hafna því að selja þær,“ segir Ragnheiður og segir að Samtök iðnaðarins telji að það eigi að fella ákvæðið um keimlíkindi á brott úr frumvarpinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×