Ótækt að dómstóll sé á reit hjá lögreglunni Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 15. mars 2014 00:01 Borgarráð hefur skipað viðræðuteymi um flutning starfsemi dómhússins. Vísir/Valli
Hvorki Dómarafélag Íslands né Dómstólaráð hafa fengið að vera með í ráðum eða fengið afrit af bréfaskriftum borgarstjóra og innanríkisráðherra um mögulegan flutning Héraðsdóms Reykjavíkur af Lækjartorgi að sögn Skúla Magnússonar, formanns dómarafélagsins. Vitnað var á Vísi í fyrradag í skrif Dags B. Eggertssonar á Facebook þar sem hann sagði að innanríkisráðherra hefði tekið vel í óskina um viðræður um að flytja Héraðsdóm af Lækjartorgi. „Borgarráð skipaði viðræðuteymi í morgun,“ skrifaði Dagur. Í viðtali við Vísi sagði hann að lögreglustöðvarreiturinn við Hlemm væri tilvalin staðsetning. Þar væri stórt plan þar sem hægt væri að koma upp byggingum. Símon Sigvaldason, formaður Dómstólaráðs sem fjallaði meðal annars um málið á fundi sínum í gær, segir það algerlega ótækt að flytja starfsemi dómhússins á lögreglureitinn. „Árið 1992 varð frægur aðskilnaður. Þá var dómsvald og framkvæmdavald aðskilið. Dómsvaldið var tekið af sýslumönnum til að það yrði sýnilega sjálfstætt. Dómsvaldið á að vera óháð og ótengt framkvæmdarvaldinu og þess vegna gengur aldrei að setja lögreglu og dómstóla aftur á sama stað,“ segir Símon. Hann bætir við að Dómstólaráð mótmæli harðlega þeim vinnubrögðum að ekkert samráð skuli hafa verið haft við það og Héraðsdóm Reykjavíkur um undirbúning að flutningnum.Skúli MagnússonRáðið segir að finna verði starfseminni stað í hjarta höfuðborgarinnar þar sem nú þegar sé að finna helstu stofnanir ríkisins og Reykjavíkurborgar. Skúli Magnússon segir að svo virðist sem flytja eigi Héraðsdóm hreppaflutningum. „Þetta virðist alfarið vera mál borgarinnar og innanríkisráðherra hvar stærsti dómstóll landsins eigi að vera. Það er ekki metnaður fyrir því að héraðsdómur fái stað sem ber vitni um virðingu og reisn dómkerfisins þegar rætt er um hann verði á bak við lögreglustöðina,“ segir Skúli. Formaður borgarráðs hefur lýst því yfir að dómhúsið smiti engri gleði á Lækjartorg. Möguleiki væri að koma þar fyrir verslunum og veitingahúsi. „Þetta er partur af því sem ég myndi kalla kaffihúsavæðingu miðbæjarins. Það er tímabært að menn fari að spyrja sig að því um hvað miðborg eigi að snúast,“ segir formaður dómarafélagsins.
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Erlent Hiti geti mest náð átján stigum Veður „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent Ráðist á pilt á heimleið Innlent Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Innlent Fleiri fréttir Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Sjá meira