Vill þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að NATO Stefán Árni Pálsson skrifar 23. september 2014 18:04 Ögmundur Jónasson. visir/anton
Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, mælir í dag fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Norður-Atlantshafsbandalaginu, NATO. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinstri hreyfingunni græns framboðs. Samkvæmt tillögunni á atkvæðagreiðslan að fara fram eigi síðar en um mitt ár 2015. Ögmundur vakti athygli á dögunum fyrir að boða framlagningu tillögunnar í samhengi við fréttir af væntanlegri vígvæðingu NATO. Allur þingflokkur Vinstri grænna flytur málið en Ögmundur er fyrsti flutningsmaður. Í greinargerð með tillögunni er framlagning hennar nú rökstudd út frá breyttu eðli NATO undanfarin ár. Þar segir meðal annars: „Áform eru nú uppi meðal leiðtoga bandalagsins um 4.000 manna herlið á vegum bandalagsins til að mæta óskilgreindri ógn frá ríkjum utan bandalagsins. Hvorki sér fyrir endann á þessari útrás bandalagsins, né átökunum sem þau standa í nú og í framtíðinni. Nauðsynlegt er að staldra við og gefa landsmönnum færi á að svara þeirri spurningu hvort þeir telji rétt að Ísland eigi aðild að slíkum hernaðaraðgerðum og ljóst að mikil þörf er á opinni og lýðræðislegri umræðu um samflot Íslands í fyrrnefndum hernaðaraðgerðum.“ Þá er bent á að í undirbúningi sé að leggja fram sérstaka Þjóðaröryggisstefnu Íslands sem ná eigi þverpólitískri samstöðu um, en hins vegar sé óhugsandi að samstaða náist um stefnu sem fæli í sér áframhaldandi þátttöku í hernaðaraðgerðum NATO: „Í ljósi þess að utanríkisráðherra hefur lýst yfir vilja til að ná þverpólitískri samstöðu um þjóðaröryggisstefnu Íslands er rétt að vísa þeim hluta tillagna nefndarinnar til þjóðarinnar sem snýr að veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu beint til þjóðarinnar og marka þess í stað stefnu um borgaraleg þjóðaröryggismál sem ætla má að náist breiðari samstaða um.“
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira