Lýsa yfir miklum vonbrigðum með fjárlagafrumvarpið Stefán Árni Pálsson skrifar 23. september 2014 19:21 Ísak Rúnarsson, formaður Stúdentaráðs.
Stúdentaráð Háskóla Íslands lýsir yfir miklum vonbrigðum með frumvarp til fjárlaga 2015 en stúdentar hafa sent frá sér ályktun þess efnis. Þar segir að allt frá stofnun Háskóla Íslands hafi vinnu, tíma og fjármunum verið varið í uppbyggingu grunnstoða hans, niðurskurður undanfarinna ára stofni þeim grunnstoðum í hættu. „Í gegnum tíðina hefur sátt ríkt um að marka metnaðarfulla menntastefnu en undanfarin ár hefur fátt verið um efndir stjórnvalda. Ef áfram verður haldið á sömu braut er ljóst að smám saman heltist háskólinn úr lestinni í samkeppni háskóla á heimsvísu.“ Í ályktuninni segir einnig að í hnattvæðingu nútímans sé bein samkeppni við alþjóðasamfélagið um mannauð óhjákvæmileg. „Nú á tímum er staðreyndin sú að fólk er síður bundið af landamærum og því verður að bjóða upp á samkeppnishæfa menntun á Íslandi. Þannig er byggður upp mikill mannauður og komið í veg fyrir að ungt og efnilegt fólk flytji úr landi. Góður háskóli er grunnur að góðu samfélagi.“ Helsta mælikvarðann við mat á ólíkum háskólakerfum milli landa má finna í skýrslu OECD, Education at a Glance 2014. Í skýrslunni eru m.a. fjárveitingar til háskólakerfa allra landa OECD mældar en árið 2008 hafði Ísland aðeins fjárveitingu sem nam 76% af meðaltali OECD landanna. Síðan þá hefur munurinn aukist og nú er svo komið að íslenska háskólakerfið fær aðeins 62% af meðalfjárveitingu OECD-landanna, sem samsvarar um 6 milljarða króna gati fyrir Háskóla Íslands. „Ríkisstjórnin, í gegnum Vísinda- og tækniráð, hefur sett sér þá stefnu að árið 2016 verði fjárveitingar til háskólastigsins a.m.k. jafnar því sem nemur meðaltalsfjárveitingu í OECD-löndunum. Í Vísinda- og tækniráði sitja Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Bjarni Benediktsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Illugi Gunnarsson. Í fjárlagafrumvarpi 2015 er þó ekki gert ráð fyrir að auka fé til háskólanna svo einhverju nemi og er það áfellisdómur yfir þeim að framfylgja ekki stefnu sinni.“ Stúdentaráð segir einnig að í drögum að úttekt Evrópusambandsins á störfum ráðsins séu stjórnvöld harðlega gagnrýnd fyrir ábyrgðarleysi sem fylgir því að setja markmið en aðhafast ekkert. „Stúdentaráð Háskóla Íslands fordæmir slík vinnubrögð og fer fram á að stjórnvöld fylgi eftir þeirri stefnu sem þau hafa sett sér.“ Ljóst sé að menntakerfið standi á miklum tímamótum og fjárfesting innan kerfisins nauðsynleg. Tækniþróun hafi búið til mikil tækifæri og krafan um nýjar og fjölbreyttari kennsluaðferðir hafi orðið sífellt háværari bæði innan og utan veggja háskólasamfélagsins. „Sú fjárfesting sem þarf til að leggjast í kerfisbundnar breytingar sem þjóna þörfum nútímans mun ekki eiga sér stað í fjársvelti. Spurningunni um hvenær kennsluaðferðir taki á sig mynd 21. aldarinnar verður því fyrst og fremst svarað í fjárlögum.“
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira