Þöggun á velferðarsviði Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 17. september 2014 07:00 Umboðsmaður borgarbúa kynnti áfangaskýrslu um starf umboðsmanns á fundi í gær. Samkvæmt skýrslunni er margt við starfsemi velferðarsviðs að athuga. Fréttablaðið /Stefán
Það er fjölmargt við starfsemi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar að athuga ef marka má áfangaskýrslu umboðsmanns borgarbúa, Inga B. Poulsen, sem kynnt var á borgarstjórnarfundi í gær. Embættinu var komið á laggirnar sem tilraunaverkefni í byrjun maí 2013 og nær skýrslan til 1. september á þessu ári. Á tímabilinu komu 423 mál til kasta embættisins, flest þeirra tengdust velferðarsviði borgarinnar eða 161. Af málum sem komu til kasta velferðarsviðs er 111 lokið, 29 eru í vinnslu og 21 hefur verið sett á bið. Í skýrslunni kemur fram að strax í upphafi eftir að umboðsmaður tók til starfa hafi komið fram ítrekaðar athugsemdir við eitthvað sem megi kalla vinnustaðamenningu á velferðarsviði. Umkvörtunarefni borgarbúa sem sneru að velferðarsviði hafi verið á sömu lund. Ofuráhersla væri lögð á fjárhagslegar hindranir og notendur þjónustu velferðarsviðs heyrðu oftar en ekki þau rök að að Reykjavíkurborg hefði ekki fjárhagslegt bolmagn til að veita þá þjónustu sem óskað væri eftir. „Þá bar einnig á góma mikil innri átök á vinnustaðnum. Talsverður samskipta- og stjórnendavandi væri til staðar sem hefði áhrif á þá þjónustu sem veitt væri á sviðinu,“ segir orðrétt í skýrslu umboðsmanns borgarbúa. Fleiri umkvartanir koma fram í skýrslunni. Umboðsmaður segir að borgarbúar teldu sig upplifa litla virðingu fyrir málaflokknum og tortryggni í garð fólks sem nýtir sér þjónustu velferðarsviðsins. Talsverð hræðsla væri við afhjúpun mistaka sem leiddi af sér þöggun. Til að mynda hafi nokkrir starfsmenn borgarinnar bent á að óheimilt væri að veita borgarbúum aðgang að verklagsreglum þrátt fyrir að synjun á umsókn hans væri byggð á þeim reglum. Þá segir umboðsmaður að fram hafi komið ábendingar um stjórnskipuleg vandamál á velferðarsviði. Felist þær í því að miðstýring sé of mikil. „Í stjórnskipulagsbreytingum þar sem þjónustumiðstöðvar voru færðar undir sviðið hafi miðstýring aukist og á sama tíma fjarlægð orðið milli þjónustumiðstöðva og skrifstofu velferðarsviðs. Það hafi leitt af sér óskýr skil milli ábyrgðarhlutverka, óskýrari boðleiðir og takmarkað upplýsingaflæði milli stiga,“ segir umboðsmaður. Talsvert hafi borið á kvörtunum þess efnis að áhersla sé lögð á gerð verklagsreglna á sviðinu. Verklagsreglurnar séu ósveigjanlegar, markmið þeirra sé oftar en ekki að komast hjá því að taka matskenndar ákvarðanir og þær séu yfirleitt túlkaðar of þröngt.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fleiri fréttir Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira