Innheimtumenn ríkissjóðs fái auknar lagaheimildir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. september 2014 10:49 Sveinn Arason ríkisendurskoðandi. Vísir/GVA
Ríkisendurskoðun hvetur fjármála- og efnahagsráðuneytið til að beita sér fyrir því að innheimtumenn ríkissjóðs fái auknar lagaheimildir til að afla upplýsinga um fjárhags- og eignastöðu þeirra sem skulda opinber gjöld. Þá telur stofnunin að breyta eigi lögum til að skattyfirvöld og ársreikningaskrá geti samnýtt upplýsingar frá lögaðilum. Enn fremur þurfi að grípa til aðgerða til að bæta framtalsskil. Þetta kemur fram á vef Ríkisendurskoðunar. Árið 2011 birti Ríkisendurskoðun skýrslu um innheimtu opinberra gjalda þar sem átta ábendingum var beint til fjármálaráðuneytisins (nú fjármála- og efnahagsráðuneyti) og einni til Fjársýslu ríkisins. Ábendingarnar lutu að ýmsum úrbótum á skipulagi og stjórnun innheimtumála. Nú þremur árum síðar telur Ríkisendurskoðun að brugðist hafi verið við sex af þessum níu ábendingum með þeim hætti að ekki sé þörf á að ítreka þær. Í nýrri eftirfylgniskýrslu ítrekar stofnunin hinar þrjár en þær beinast allar að fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Ríkisendurskoðun hvetur ráðuneytið til að: -Beita sér fyrir því að innheimtumenn ríkissjóðs fái auknar lagaheimildir til að afla upplýsinga um fjárhags- og eignastöðu skuldara, m.a. með aðgangi að skattframtölum þeirra. Bent er á að innheimtuyfirvöld í nágrannalöndunum hafi slíkar heimildir. -Stuðla að því að lögum verði breytt þannig að ársreikningaskrá og skattyfirvöld geti samnýtt ársreikninga þegar þeim hefur eingöngu verið skilað til annars hvors þeirra. -Grípa til raunhæfra aðgerða til að bæta skil á skattframtölum. Bent er á að árið 2013 sætti tæplega þriðjungur lögaðila áætlun opinberra gjalda og um 5% einstaklinga.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira