Sendiherrann sagður einlægur og ábyggilegur maður Jakob Bjarnar skrifar 17. september 2014 12:42 Arnþór átti í mjög góðu samstarfi við Ma Jisheng, meðan hann var á Íslandi, og honum er brugðið vegna nýjustu frétta af afdrifum hans.
Kínverskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Ma Jisheng, sendiherra Kína á Íslandi, hafi verið handtekinn ásamt konu sinni grunaður um njósnir fyrir Japan. Arnþóri Helgasyni, er brugðið. Hann er formaður Kínversk-íslenska menningarfélagsins og vinuáttusendiherra Kínverja á Íslandi, og þekkir Ma Jisheng ágætlega. Og honum koma þessar nýjustu fregnir ekki alveg í opna skjöldu þó honum sé verulega brugðið.Misvísandi sögur um afdrif Ma Jisheng „Þetta voru fyrstu sögusagnirnar sem ég heyrði, sennilega í júní og fékk þær svo staðfestar í ágúst. Síðan fékk ég aðrar heimildir, að þetta stafaði af fjölskylduvandræðum,“ segir Arnþór og vísar þá til óljósra fregna þess efnis að Ma Jisheng væri horfinn. „En, ef þetta er rétt þá var því meðal annars haldið fram við mig í júlílok að um gæti verið að ræða óþarflega mikla upplýsingagjöf á meðan hann stýrði upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins í Kína, eða þetta væri vegna fjármála sendiráðsins í Japan, en þar fara um miklir fjármunir vegna fjölda vegabréfsáritana. Ma Jisheng var sendiherra Kína á Íslandi frá árinu 2012 og til byrjunar árs 2014 en þá var sem hann hafi horfið sporlaust. „Sé þessi frétt á rökum reynst, (það er handtakan), þá þykir mér það mjög leitt. Því að við hjá Kínversk-íslenska menningarfélaginu áttum mjög gott samstarf við þennan mann. Og ég sem kunningi hans óska honum í raun og veru einskis annars en alls góðs.“Einlægur maður Arnþór segir þetta slæm tíðindi því Ma Jisheng er mætur maður í hans bókum. „Já, mér kom hann fyrir sjónir sem fremur áreiðanlegur maður og einlægur. En, það þekkir að vísu enginn allar hliðar hvers einstaklings. Hver maður á sér hliðar sem ekki kannski opinberast. Hitt er svo annað mál að svona upplýsingaleki getur stafað af óaðgæslu. Og ég trúi því ekki fyrr en á reynir að þessi maður hafi reynt að skaða hagsmuni Kínverja með því að deila upplýsingum í Japani.“Gæti átt yfir höfði sér dauðadóm Viðurlög við njósnum eru hörð í Kína, að sögn Arnþórs, geta verið allt frá margra ára fangelsisvist og allt uppí dauðadóm. „Nú veit ég ekki hversu alvarlegt þetta brot verður og vona að kínverska réttarfarið rannsaki þetta mál og dómurinn verður þá samkvæmt niðurstöðunum sem vonandi verða sanngjarnar. Það er mikil áhersla lögð á að berjast gegn spillingu af hálfu núverandi stjórnvöldum í Kína. Og, það er einnig lögð mikil áhersla á að framfylgt sé þeim réttarfarsreglum sem samþykkar voru á síðasta þingi. Og það skiptir öllu máli að við það verði staðið,“ segir Arnþór Helgason.
Tengdar fréttir Sendiherra Kína á Íslandi handtekinn vegna gruns um njósnir Sendiherra Kína á Íslandi, Ma Jisheng, og eiginkona hans, Zhong Yue, hafa verið handtekin af kínverskum yfirvöldum vegna gruns um njósnir í Japan. 17. september 2014 08:52 Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira
Sendiherra Kína á Íslandi handtekinn vegna gruns um njósnir Sendiherra Kína á Íslandi, Ma Jisheng, og eiginkona hans, Zhong Yue, hafa verið handtekin af kínverskum yfirvöldum vegna gruns um njósnir í Japan. 17. september 2014 08:52