ASÍ segir engan grundvöll fyrir samstarfi við ríkisstjórnina Stefán Ó. Jónsson skrifar 17. september 2014 16:37 Frá kröfugöngu á 1. maí, Degi verkalýðsins. VÍSIR/daníel
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands segir engan grundvöll fyrir frekari samstarfi eða samræðu við ríkisstjórnina verði fjárlagafrumvarpið samþykkt óbreytt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá miðstjórn ASÍ sem gagnrýnir frumvarpið harðlega. Þar segir ennfremur að launafólk hafi á síðustu árum tekið á sig miklar byrðar með samdrætti í tekjum, auknum útgjöldum og skuldsetningu sem hafi leitt til minni kaupmáttar. Á sama tíma hafi ríkisstjórnin lækkað skatta á eignafólk, hátekjumenn og fyrirtæki sem skila methagnaði. Launafólk sem færði miklar fórnir hefur réttmætar væntingar um að endurreisn og uppbygging velferðarkerfisins hafi ríkan forgang nú þegar viðsnúningur hefur orðið í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar að mati ASÍ. Alþýðusamband Íslands hafnar því alfarið að nauðsynlegt sé fyrir launafólk að mæta minni tekjum ríkissjóðs með aðhaldsaðgerðum og margháttuðum skerðingum gagnvart almenningi. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar kalli á að aðildarfélög ASÍ undirbúi sig og félagsmenn sína fyrir harðari deilur við gerð kjarasamninga en verið hefur um áratuga skeið. Aðförina að launafólki telur miðstjórn ASÍ felast meðal annars í:Hækkun á matvælum„Hækkun virðisaukaskatts á matvæli er aðför að hagsmunum launafólks sem ver stórum hluta tekna sinna til kaupa á mat- og drykkjarvöru. Þær mótvægisaðgerðir sem boðaðar eru munu aðeins gagnast hluta lágtekjufólks og aðeins að takmörkuðu leyti.“Atvinnuleysistryggingar „Aðför að atvinnulausu fólki sem boðuð er með styttingu bótatímabilsins er fordæmalaus og mun koma sérstaklega illa við þá sem veikast standa á vinnumarkaði og auka enn á fátækt í landinu.“ Starfsendurhæfing„Með því að fella niður lögboðið og umsamið framlag til Starfsendurhæfingarsjóðs er vegið með alvarlegum hætti að hagsmunum fólks sem veikist og slasast og þarf á starfsendurhæfingu að halda. Með því er dregið úr möguleikum þess að komast aftur á vinnumarkað og þannig til virkrar þátttöku í samfélaginu.“Heilbrigðismál„Skerðingar á framlögum til jöfnunar örorkubyrða almennra lífeyrissjóða veldur því að skerða þarf lífeyrisgreiðslur til félagsmanna Alþýðusambandsins, og er félagsmönnum þeirra sjóða þannig enn á ný mismunað gagnvart þeim sjóðum sem njóta ríkisábyrgðar. Kostnaður vegna lyfja og heilbrigðisþjónustu eykst verði frumvarpið að lögum og þannig er sérstaklega vegið að hagsmunum sjúklinga og allra þeirra sem þurfa á þessari þjónustu að halda.“Húsnæðismál„Ekki er gert ráð fyrir neinum auknum framlögum til að mæta kröfum um úrbætur í húsnæðismálum, hvorki í almenna húsnæðiskerfinu eða vegna félagslegra íbúða.“Menntamál„Þrátt fyrir fögur fyrirheit ráðamanna um að efla starfs-, verk- og tæknimenntun er dregið hlutfallslega úr framlögum til verkmenntaskóla og vinnustaðanámssjóður þurrkaður út. Möguleikar fólks á vinnumarkaði til að sækja nám í framhaldsskólum eru skertir verulega. Þá er framlag til framhaldsfræðslu fyrir fólk með litla formlega menntun skert umtalsvert,“ segir í yfirlýsingunni.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Fólk megi lesa í ræðuna eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sjá meira