Fótbolti

Krasnodar tapaði öðrum leiknum í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ragnar og félagar máttu þola tap gegn Ufa í dag.
Ragnar og félagar máttu þola tap gegn Ufa í dag. Vísir/Getty
Ragnar Sigurðsson og félagar í FC Krasnodar biðu lægri hlut fyrir UFA á heimavelli í rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Brasilíumaðurinn Marcinho og Pavel Alikin skoruðu mörkin í sitthvorum hálfleiknum.

Ragnar lék allan leikinn í vörn Krasnodar sem hefur tapað tveimur leikjum í röð. Krasnodar situr í 7. sæti með 11 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×