Eftirlitsnefnd skellir skuldinni á óseldan golfvöll Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. júlí 2014 07:00 Aðeins þrjár holur voru tilbúnar þegar Grímsness- og Grafningshreppur keypti golfvöll við Minni-Borgmeð 56 hekturum lands á 55 milljónir króna. Um 40 milljónir hafa síðan verið settar í framkvæmdir á vellinum. Mynd/Golfborgir ehf.
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga segir ástæðu þess að skuldastaða Grímsness- og Grafningshrepps sé yfir viðmiðunarreglu vera þá að áform um sölu golfvallar sem sveitarfélagið keypti fyrir nokkrum árum hafa ekki gengið eftir. „Þau sem hafa verið í stjórninni telja þetta mjög lítilvægt og taka þessu mjög léttúðlega,“ segir Sigrún Jóna Jónsdóttir, annar tveggja fulltrúa minnihluta K-listans sem í bókun í sveitarstjórninni lögðu áherslu á að gerð yrði áætlun um það hvernig ná eigi skuldahlutfallinu niður. Það er 161 prósent af skatttekjum en má mest vera 150 prósent. Gunnar Þorgeirsson, oddviti fyrir meirihluta C-lista, tekur ekki undir með eftirlitsnefndinni að golfvöllurinn sé ástæða þess að skuldahlutfallið sé yfir mörkum. Meginástæðan sé kaup sveitarfélagsins á skóla, sundlaug og stjórnsýsluhúsi af Fasteign og leigusamningur þar á undan sem að hálfu leyti hafi verið bundinn við evru. Þá bendir oddvitinn á að samkvæmt lögum hafi sveitarfélagið tíu ár frá árinu 2011 til að koma skuldunum undir mörkin.Uppfært: Upphaflega stóð í fréttinni að Gunnar Þorgeirsson oddviti væri í J-lista. Rétt er hins vegar að Gunnar tilheyrir C-lista. Enginn J-listi er í Grímsness- og Grafningshreppi.
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Fleiri fréttir Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Sjá meira