„Kemur boltanum rækilega af stað“ Anna Dröfn Ágústsdóttir skrifar 6. september 2014 07:00 Ása Helga uppgötvaði Svaninn þegar hún nam bókmenntafræði við Háskóla Íslands. fréttablaðið/Valli „
Vilyrðið frá Kvikmyndasjóði breytir öllu,“ segir Ása Helga Hjörleifsdóttir kvikmyndagerðarkona, sem hefur fengið vilyrði fyrir 80 milljóna króna styrk úr Kvikmyndasjóði Íslands fyrir árið 2016 en ekki hefur verið tilkynnt um fleiri styrki úr sjóðnum fyrir það ár. Styrkinn fær Ása Helga fyrir Svaninn, kvikmynd byggða á samnefndri skáldsögu Guðbergs Bergssonar. Styrkinn segir Ása munu auðvelda þeim að leita alþjóðlegra styrkja en meðframleiðendur myndarinnar koma frá Þýskalandi og Frakklandi. Ása var í hópi tíu leikstjóra sem valdir voru til að kynna handrit á Kvikmyndahátíðinni í Berlín en mikill heiður er að vera boðin þátttaka. Þrjú handrit voru sérstaklega verðlaunuð og var handrit Ásu eitt af þeim. Gengið var endanlega frá kvikmyndaréttinum á Svani Guðbergs Bergssonar í september í fyrra en fleiri sýndu réttinum áhuga. Ása Helga uppgötvaði Svaninn þegar hún las hann í bókmenntafræði við Háskóla Íslands. „Ég heillaðist alveg af honum. Hann hafði rosaleg áhrif á mig. Ég fór strax að hugsa mjög myndrænt um bókina.“ Móðir Ásu Helgu, Birna Bjarnadóttir, er doktor í bókmenntafræði og sérfræðingur í bókmenntum Guðbergs Bergssonar. Ása segir starf móður sinnar ekki hafa ýtt undir áhuga sinn á Guðbergi heldur mögulega frekar haft öfug áhrif. „Ég hafði engan áhuga á bókum Guðbergs þegar ég var yngri. Ég fékk meira að segja Svaninn í fermingargjöf og skilaði honum,“ segir Ása hlæjandi. Þær mæðgur segir hún vera miklar vinkonur og að hún hafi ítrekað leitað til móður sinnar við gerð handritsins. „Mamma er minn helsti ráðgjafi.“ Svanurinn er fyrsta mynd Ásu í fullri lengd en hún vakti mikla athygli fyrir stuttmyndina Ástarsaga, sem var lokaverkefni hennar frá kvikmyndagerðardeild Columbia-háskóla í New York. Ása bjó þar þangað til síðasta haust þegar hún flutti aftur til Íslands. Ekki liggur fyrir hvenær tökur muni hefjast en Ása er byrjuð að hugsa um tökustaði og er mjög hrifin af hugmyndinni um að taka upp í Svarfaðardal, en hún á ættir að rekja þangað. Hún getur ekkert sagt um leikaraval en aðalpersónan í bókinni Svaninum er níu ára stúlka.
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Fleiri fréttir Svala minnist pabba síns Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Sjá meira