Með sýningaratriði á mannréttindasafni Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 22. september 2014 07:15 „Safnið verður í samtali við samfélagið,“ segir Ásta Olga Magnúsdóttir. Mynd/The Canadian Museum For Human Rights
Íslenska fyrirtækið Gagarín var fengið til að setja upp þrjú gagnvirk sýningaratriði á mannréttindasafni í Winnipeg í Kanada sem opnað var nú um helgina. Safnið, The Canadian Museum for Human Rights, er fyrsta safnið í heiminum sem eingöngu er helgað mannréttindum.Ásta olga magnúsdóttir„Þar er búið að skapa einstakan stað sem fólk mun koma á og læra og fá innblástur til að vinna að mannréttindamálum um ókomna framtíð,“ segir Ásta Olga Magnúsdóttir, verkefnisstjóri hjá Gagarín sem sérhæfir sig í hönnun á gagnvirkum lausnum fyrir söfn og sýningar. Fyrirtækið sendi tillögur í útboð vegna sýningaratriðanna og hefur unnið að verkefninu undanfarin þrjú ár. „Það var mikill heiður að hafa verið valin og ótrúlega gaman að taka þátt í svona stóru verkefni. Þetta hefur verið langt ferli og margir ólíkir aðilar þurftu að koma að verkefninu. Þessar þrjár sýningarlausnir sem við erum með eru unnar í samstarfi við safnið í tengslum við þemu sem það er með. Við erum meðal annars með gagnvirkar sögur þar sem fjallað er um fólk sem hefur unnið að mannréttindamálum. Annað atriði er mjög falleg lifandi myndlíking um stjórnarskrá Kanada sem setur alveg tóninn fyrir eitt af ellefu galleríum safnsins og þriðja atriðið tengist mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna en þar erum við að vinna með hreyfiskynjun.“Skjáskot af einu af sýningaratriðum Gagaríns.Ásta segir safnið eiga að vera í miklum tengslum við það sem er að gerast á líðandi stundu. „Þetta verður safn sem verður í samtali við samfélagið. Það setur Winnipeg á kortið sem mannréttindaborg og það verður staður þar sem fólk kemur aftur og aftur. Gagarín hefur lagt mikla vinnu í að kynna starfsemi og lausnir víða erlendis og meðal verkefna þess núna er hönnun á gagnvirkum kynningum um alla þjóðgarða Noregs sem settar verða upp í 15 upplýsingamiðstöðvum fyrir ferðamenn. Jafnframt tók fyrirtækið að sér í samstarfi við sænsku arkitektastofuna Codesign að hanna gagnvirkar sýningarlausnir fyrir nýja olíusýningu í Vísinda- og tæknisafninu í Ósló sem opnuð var á þessu ári.
Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Sjá meira