Sérfræðingur í persneskum teppum vann mál gegn ríkinu Stefán Árni Pálsson skrifar 22. september 2014 21:05 Héraðsdómur Reykjavíkur og persneskt teppi. visir/pjetur
Héraðsdómur Reykjavíkur sneri í dag ákvörðun Velferðarráðuneytisins sem synjaði írönskum manni um tímabundið atvinnuleyfi í lok ársins 2013. Maðurinn hafði sótt um tímabundið atvinnuleyfi vegna þeirra sérfræðikunnáttu sem hann hafði til að selja handgerð persnesk teppi. Velferðarráðuneytið taldi ekki þurfa neina sérfræðikunnáttu til starfsins. Maðurinn, sem kom til landsins sem námsmaður, keypti fyrirtæki af lögfræðistofunni Logos árið 2011. Sjálfur er hann framkvæmdarstjóri fyrirtækisins sem sérhæfir sig í því að flytja inn vörur frá Austurlöndum. Vinnumálastofnun synjaði manninum fyrst um atvinnuleyfi og var þá málið sent yfir á velferðarráðuneytið þar sem niðurstaða Vinnumálastofnunar var kærð. Ráðuneytið staðfesti ákvörðun Vinnumálastofnunar.Héraðsdómur Reykjavíkur komst aftur á móti að annarri niðurstöðu í dag og mun maðurinn því fá tímabundið atvinnuleyfi. Fram kemur í dómsorðum að maðurinn hafi gert grein fyrir því hvaða starfsemi hann hyggst stunda. Hann sýndi einnig fram á það að sérþekking starfsmanns sé þeirri starfsemi nauðsynleg. Einnig segir í dómsorðum:„Þótt ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 13. maí 2013 sé ekki ítarlega rökstudd er þó vel greinanlegt að synjun stofnunarinnar er á því byggð að ekki þykir hafa verið leitað með nægilega víðtækum hætti að starfsmanni meðal þeirra sem forgang eigi að störfum, þ.e. innanlands og innan EES-svæðisins, og því sé synjað um atvinnuleyfi fyrir starfsmann utan EES-svæðisins. Í ljósi þeirra upplýsinga um eðli starfsins sem fram voru komnar af hálfu stefnanda og auglýsinga sem birtar voru í samráði við Vinnumálastofnun var fullt tilefni til þess fyrir stofnunina að kanna það nánar hvers vegna stefnanda væri nauðsyn á sérhæfðum starfsmanni og kalla eftir atvikum eftir frekari upplýsingum og röksemdum þar að lútandi hjá stefnanda áður en ákvörðun yrði tekin.“Héraðsdómur féllst á það með manninum að galli sé á málsmeðferð Vinnumálastofnunar.Í dómsorðum segir einnig: „Það er niðurstaða dómsins að öllu framangreindu virtu að Vinnumálastofnun og velferðarráðuneytið hafi ekki gætt þeirrar skyldu sinnar við meðferð máls stefnanda að upplýsa málið nægjanlega í skilningi 10. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, með því að leysa úr málinu án viðhlítandi rannsóknar á þörfum fyrirtækisins á sérhæfðum starfsmanni.“ Þá þykir Velferðarráðuneytið ekki hafa rökstutt niðurstöðu sína með þeim hætti sem áskilið er. Íslenska ríkið var gert að greiða manninum 300.000 krónur í málskostnað þar með talinn virðisaukaskattur. Dóminn í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Sjá meira