„Hér hefur allt nötrað og skolfið fimm til sex sinnum á dag“ Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 14. febrúar 2014 10:28 Hús Svanlaugar Rósar Ásgeirsdóttur er í sex metra fjarlægð frá þeim stað sem sprengt er. Vísir/GVA Vísir/Pjetur „
Heilbrigð skynsemi segir manni að ef einhver skemmir fyrir manni eigi hann að bæta fyrir það,“ segir Auður Sigríður Kristinsdóttir, íbúi á Grandavegi. Auður telur að vegna sprenginga á klöpp á Lýsisreitnum þar sem byggja á fjölbýlishús hafi molnað úr grjótveggjum í kjallara timburhúss hennar sem byggt var 1981. Einnig hafi molnað úr fúgum á baðherbergi og klukka sem oft hafi dottið úr hillu í stofu gangi ekki lengur. „Fyrir tveimur vikum kölluðum við á forstjóra Hagtaks, undirverktakans sem sér um sprengingarnar, og fulltrúa VÍS sem er tryggingafélag hans. Þeir sögðu þetta afleitt en svo héldu þeir bara áfram að sprengja.“ Auður segir að á fundi íbúa í Vesturbænum á mánudag með fulltrúum ýmissa hlutaðeigandi hafi byggingarfulltrúi sagt kraft sprenginganna hafa verið innan leyfilegra marka reglugerðar.Svanlaug Rós bendir á sprungu í vegg.Vísir/Pjetur „Fulltrúi VÍS sagði að þess vegna væri tryggingafélagið ekki skyldugt til að bæta skaðann. Þeir greiddu bara ef um sök væri að ræða. Eftir fundinn funduðu eftirlitsaðilar með verktakanum og í kjölfarið var krafturinn í sprengingunum minnkaður.“Svanlaug Rós Ásgeirsdóttir býr á Lágholtsvegi, aðeins sex metrum frá klöppinni sem sprengd er. „Hér hefur allt nötrað og skolfið fimm til sex sinnum á dag frá því byrjað var að sprengja. Það er sprunga í vegg innanhúss og klæðningin utan á húsinu er að losna. Það virðist vera sem reglugerðin um sprengingar sé ansi rúm og ekki eiga við í þéttbýli. Hins vegar hef ég heyrt að það sé yfirleitt venjan þegar sprengt er í þéttbýli eða nálægt húsum að minnka leyfilegan hámarkskraft í sprengingum um helming sem nú er loksins búið að gera hér. Þetta er orðið mun bærilegra en samt ansi mikið. Þeir eru svo svakalega nálægt.“ Svanlaug segir verktakann hafa greint frá því að íbúar þyrftu ekki að hafa miklar áhyggjur því hann væri með tryggingu. Vísir/Pjetur „Svo var maður upplýstur um að hún gilti bara ef krafturinn í sprengingunum væri of mikill eða ef verktakinn hefði sýnt af sér vítavert gáleysi. En í reglugerðinni segir að huga þurfi að nágrenninu og að ekki megi valda skemmdum. Þar með eru þeir búnir að brjóta af sér." Á fundi Hverfisráðs Vesturbæjar í gær var meðal annars fjallað um áhyggjur íbúa vegna sprenginganna á Lýsisreitnum. Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi og formaður ráðsins, segir að ákveðið hafi verið að beina því til umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar að það beitti sér fyrir því að tekið yrði föstum tökum hver innan borgarkerfisins geti borið ábyrgð á framkvæmdum eins og þeim sem eru á Lýsisreitnum. „Á fundi með íbúum kom fram að verktakinn telur sig vera innan lagalegra viðmiða. Þegar fyrir liggur að stefna borgarinnar er að þétta byggð er það brýnt hagsmunamál fyrir íbúa að það sé skýrt hver beri ábyrgðina. Framkvæmdir eiga að ganga betur en svo að íbúar séu óöruggir með rétt sinn,“ segir Hildur.Auður Sigríður Kristinsdóttir sýnir hvernig molnað hefur úr veggjum í kjallara húss hennar.Vísir/Pjetur Reisa á fjölbýlishús með 141 íbúð á Lýsisreitnum á mótum Grandavegar og Eiðsgranda. inn 6. janúar síðastliðinn var byrjað að sprengja klöpp á reitnum sem er fyrir bílakjallara og er sprengt fimm til sex sinnum á dag. Áætluð lok sprenginga voru um mánaðamót febrúar og mars. „Það gæti dregist vegna ákvörðunar um að draga úr krafti sprenginga. Magn sprengiefnis var minnkað um helming,“ segir Brynjar Einarsson, talsmaður Þingvangs, byggingarfélagsins sem stendur að framkvæmdunum. Hagtak, sem er undirverktaki Þingvangs, sér um sprengingarnar. Áætlað er að byggingu fjölbýlishússins verði lokið í lok næsta árs eða í byrjun ársins 2016.
Tengdar fréttir Velta fyrir sér lögmæti sprenginganna Íbúasamtök Vesturbæjar hafa boðað til fundar vegna framkvæmda við gamla Lýsisreitinn í Vesturbæ Reykjavíkur. 11. febrúar 2014 11:12 Mest lesið Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Veður Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Fleiri fréttir Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Sjá meira
Velta fyrir sér lögmæti sprenginganna Íbúasamtök Vesturbæjar hafa boðað til fundar vegna framkvæmda við gamla Lýsisreitinn í Vesturbæ Reykjavíkur. 11. febrúar 2014 11:12