Orkuveitan vill losna við Þingvallabústaði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. september 2014 07:00 Eigendur sumarhúsanna sem nú þurfa að víkja segja fjölskyldurnar þar hafa bundist svæðinu sterkum tilfinningaböndum síðustu sextíu árin. Fréttablaðið/Pjetur „
Að mínu mati á Orkuveitan ekki að vera í starfsemi af þessum toga,“ segir Haraldur Flosi Tryggvason, formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, um þá ákvörðun að „ljúka nýtingu“ landsins í Nesjavöllum fyrir sumarhús. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi OR, segir að þegar Hitaveita Reykjavíkur hafi keypti Nesjavelli árið 1964 hafi verið yfirteknir sex leigusamningar um sumarhúsalóðir. Að auki hafi verið gerðir þrír samningar um sumarhúsalóðir við seljandann og venslafólk hans. Gildistími samninganna sé ýmist 50 eða 99 ár. Samningar til 50 ára hafi verið til 2013 og 2014. Leigan var óverðtryggð. „Leigan endurspeglar ekki verðmæti lóðanna, að mati kunnugra,“ segir Eiríkur. Stjórn Orkuveitunnar ákvað í apríl 2012 að selja sumarhúsalóðirnar. Eigendur sumarhúsanna vildu hins vegar ekki kaupa lóðirnar heldur leigja áfram og greiða 70 þúsund krónur á ári í leigu. Í kæru eigenda eins sumarbústaðarins til Kærunefndar húsamála er bent á að lóðaleiguahafar séu annaðhvort upphaflegir leigutakar eða afkomendur þeirra. „Fólkið hafi eins og nærri megi geta bundist svæðinu afar sterkum tilfinningalegum böndum og geti ekki hugsað þá hugsun til enda að missa frá sér sumarhús sín eftir allan þennan langa tíma,“ segir í umfjöllun kærunefndarinnar sem vísaði málinu frá. Stjórn OR ákvað nú í júní að hætta við sölu lóðanna og hætta að nýta þær undir sumarhús. Segir Eiríkur það hafa verið eftir að farið hafi verið yfir umhverfismál á svæðinu. Sagt er mikilvægt vegna hagsmuna Nesjavallavirkjunar að Orkuveitan ráði yfir strandlengjunni þar sem bústaðirnir standa.Haraldur Flosi Tryggvason, formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.Eiríkur segir lóðirnar í grennd við afkastamesta vatnsból á landinu, kaldavatnsbólið við Grámel. Ekki hafi verið skilgreint vatnsverndarsvæði í kringum vatnsbólið enn sem komið er þar sem vatnið hafi að langmestu leyti verið nýtt til upphitunar í Nesjavallavirkjun fyrir hitaveituna. „Ekki er víst að svo verði um alla framtíð. Þá eru lóðirnar innan áhrifasvæðis Nesjavallavirkjunar og tryggara talið að halda þeim í eigu OR,“ útskýrir Eiríkur. Haraldur Flosi bendir á að lóðir standi á afar eftirsóttum stað við Þingvallavatn. „Það er vandratað fyrir fyrirtæki í opinberri eigu að úthluta slíkum sameiginlegum gæðum til einstaklinga,“ segir stjórnarformaðurinn sem kveðst þess utan telja að tíma og athygli starfsmanna Orkuveitunnar sé betur varið í annað en útleigu sumarhúsalóða.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira