Mótmæla ráðningarferli í Hafnarfirði Samúel Karl Ólason skrifar 24. júlí 2014 14:01 Haraldur Guðmundsson og Gunnar Axel Axelsson. Vísir/Daníel
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði sagði sig úr valnefnd sem meta átti hæfi umsækjenda um bæjarstjórastöðuna í Hafnarfirði. Gunnar Axel Axelsson, segir í bókun frá fundi bæjarráðs í dag að ekki hafi verið staðið við framkvæmd ráðningarferlisins eins og til stóð. Þá segir hann að sér hafi verið tilkynnt um sameiginlega niðurstöðu fulltrúa meirihlutans í nefndinni, áður en formlegt mat á umsækjendum hafði farið fram. Ákveðið var á fundinum að ráða Harald Guðmundsson sem næsta bæjarstjóra Hafnarfjarðarkaupstaðar. Gunnar tekur fram í bókun sinni, að í ákvörðun hans felist ekki efnisleg afstaða til einstakra umsækjenda. Hvorki Haralds, né annarra sem sótt hafi um.Minnihlutinn sat hjá Fulltrúar minnihluta Samfylkingarinnar og Vinstri grænna sátu hjá í atkvæðagreiðslu um að ráða Harald og í bókun þeirra segir að það sé vegna vinnubragða fulltrúa meirihlutans í valnefndinni. „Fulltrúar minnihluta sitja því hjá við afgreiðslu tillögu meirihluta bæjarráðs en óska engu að síður nýráðnum bæjarstjóra farsældar í sínum störfum og vonast til þess að eiga við hann gott samstarf.“ Þó bendir minnihlutinn á að samkvæmt minnisblaði sem lagt hafi verið fram á fundinum eigi að hækka laun bæjarstjóra um 31,5 prósent. „Þessar upplýsingar sem fram koma í minnisblaðinu eru lagðar fram án allrar umræðu og aðkomu bæjarstjórnar. Fulltrúar minnihlutans eru mjög hugsi yfir því hvaða skilaboð felast í slíkri hækkun á launum æðsta embættismanns sveitarfélagsins.“
Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Sjá meira