Safinn ekki seldur sem barnamatur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. október 2014 14:05 Vísir/Getty
Eiturefnið patúlín sem myndast vegna myglusvepps í skemmdum ávöxtum hefur fundist í tveimur algengum tegundum af eplasafa. Annars vegar er um að ræða eplasafa frá vörumerkinu God Morgon og hins vegar frá X-tra. Aftonbladet greinir frá. Tímaritið Råd og Rön rannsakaði 12 tegundir af eplasafa sem eru á almennum markaði í Svíþjóð. Niðurstöður sýndu að magn patúlíns var yfir 10 míkrógrömmum á lítra í fyrrnefndum tveimur söfum. Slíkt magn patúlíns getur verið skaðlegt börnum. Patúlín er hins vegar ekki skaðlegt fullorðnum nema það fari yfir 50 míkrógrömm á lítra. Í samtali við Aftonbladet segir Anna Edberg hjá tímaritinu Råd & Rön málið alvarlegt þar sem börn drekki mikið af ávaxtasafa. Foreldrar lýsa einnig yfir áhyggjum af málinu í samtali við blaðið. Fulltrúar fyrirtækjanna sem framleiða safana taka undir í samtali við blaðið að málið sé alvarlegt. Það verði nú farið yfir það hvers vegna patúlín-magn var yfir mörkum þar sem allir safar séu ávallt gæðaprófaðir. Vísir hafði samband við Kristjönu Pálsdóttur vöruhússtjóri hjá Samkaupum hf. sem flytur inn og selur X-tra-vörurnar frá Danmörku. Samkvæmt upplýsingum sem hún fékk frá Danmörku er patúlín efni sem að finnst alltaf í eplum og eplasafa. Í vöru sem er á almennum markaði er miðað við þau mörk patúlíns sem eru ekki skaðleg fullorðnum, það er 50 míkrógrömm á hvern lítra. Safinn sé hvorki skilgreindur né seldur sem barnamatur og því sé ekki miðað við 10 míkrógramma mörkin. Þar af leiðandi hafi safinn ekki verið innkallaður í Skandinavíu. Að sögn söluaðilans í Danmörku innihéldu þær prufur sem voru yfir mörkum 12 míkrógrömm af patúlíni á hvern lítra en aðrar prufur mældust með minna magn af efninu.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira