Glíma við bilaðan bor og mikinn hita Haraldur Guðmundsson skrifar 25. ágúst 2014 07:00 Vaðlaheiðargöng eru nú 2.950 metra löng. Vísir/Auðunn
Verktakar í Vaðlaheiðargöngum glíma nú við vélarbilanir, mikið vatn í berginu og hitann frá sprungunni sem opnaðist í febrúar síðastliðnum. Göngin lengdust um 21 metra í síðustu viku en um 55 metra að meðaltali áður en sprungan opnaðist. „Verktakarnir vinna nú tvær átta klukkustunda vaktir vegna hitans en áður var unnið allan sólarhringinn. En nú er kominn kælibúnaður sem á að lækka hitann innst í göngunum,“ segir Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf. Hann segir könnunarholur, sem verktakinn borar 30 til 40 metrum á undan, sýna að um 59 gráðu heitt vatn er í berginu. Heitavatnssprungan sem opnaðist í vetur dælir um 200 lítrum af 46 gráðu heitu vatni á sekúndu og gerir vinnuaðstæður í göngunum erfiðar. „Það hefur því farið mikill tími í bergþéttingar en það hefur verið ákveðið að fresta því að loka stóru sprungunni þangað til byrjað verður að bora í Fnjóskadal. Síðan virka einungis tveir af þremur örmum borsins og það hægir einnig á vinnunni,“ segir Valgeir og bætir við að aðrar vélar verktakanna í Fnjóskadal hafi einnig bilað. Hann segist vonast til þess að gangagerð geti hafist í dalnum áður en veturinn skellur á. „Samkvæmt samningi átti verktakinn að vera byrjaður í Fnjóskadal í lok maí og þá með öðru borgengi. Þeir hafa ekki keypt þann bor og því erum við að leggja áherslu á að þeir byrji þá þar með borgengið sem er í Eyjafirði. Þá verður hægt að nota tímann til að loka sprungunni og jafnvel bæta loftræstinguna og vinnuaðstæður þeim megin.“
Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Búast má við slyddu Veður Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Sjá meira